Menning

Bryn­hildur hættir í Borgar­leik­húsinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins.
Brynhildur Guðjónsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins.

Bryn­hild­ur Guðjóns­dótt­ir hef­ur sagt starfi sínu sem leik­hús­stjóri Borg­ar­leik­húss­ins lausu frá og með 31. mars næst­kom­andi.

Í til­kynn­ingu frá Leik­fé­lagi Reykja­vík­ur seg­ir að Bryn­hild­ur hafi viðrað þessa hug­mynd við stjórn leik­fé­lags­ins í nóv­em­ber. Hún hafi svo tekið ákvörðun sína nýlega og tilkynnt starfsfólki leikhússins hana í morgun.

Fimm ár í brúnni en snýr sér að listinni

„Bryn­hild­ur tók við stöðu leik­hús­stjóra fyr­ir ná­kvæm­lega fimm árum, þann 14. fe­brú­ar 2020, og hef­ur frá þeim tíma veitt Borg­ar­leik­hús­inu styrka for­ystu, leitt það í gegn­um heims­far­ald­ur og skil­ar af sér góðu búi jafnt list­rænt- sem rekstr­ar­lega,“ seg­ir í til­kynn­ing­unni.

Hún ætli að helga sig listinni að fullu á ný. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur ætlar að auglýsa stöðuna og stefnt að því að viðkomandi hefji störf við und­ir­bún­ing leik­árs­ins 2025–2026 þegar í vor og taki form­lega við stjórn leik­húss­ins fyr­ir lok nú­ver­andi leik­árs.

Starfið gengið vel þrátt fyrir áskoranir

Í tilkynningu eru Brynhildi færðar þakkir frá Eggerti Benedikt Guðmundssyni, formanni Leikfélags Reykjavíkur, fyrir einstaklega vel unnin störf.

Það hafi verið stórkostlegt að vinna með henni sem leikhússtjóra þar sem forystuhæfileikar hennar og framsýni hafi haft mikil og jákvæð áhrif á starfsemi hússins. 

„Borgarleikhúsið er öflugt og framsækið leikhús sem hefur gengið afar vel undir forystu Brynhildar Guðjónsdóttur. Hún tók við stöðu leikhússtjóra í febrúar 2020, þremur vikum áður en skellt var í lás vegna heimsfaraldurs. Þrátt fyrir þær áskoranir hefur rekstur leikhússins og listrænt starf gengið fádæma vel. Brynhildur hóf seinna ráðningartímabil sitt í ágúst 2023 en hefur nú kosið að snúa til baka í listina. Stjórn LR auglýsir því eftir nýjum leikhússtjóra og er þess fullviss að reynslumikið hæfileikafólk muni sækja um.“

Fylgir innsæinu

Í færslu á Facebook segir Brynhildur að með þessu sé hún að fylgja innsæinu, hlusti á hjartað og stígi inn í listina að nýju. Það séu aðeins tvö ár eftir af skipunartíma hennar og hún sé að stíga inn í Moulan Rouge!, sem verði frumsýndur í lok september.

„Önnur verkefni eru einnig á sjóndeildarhringnum - þetta er mín köllun og þangað ætla ég af afli. Nú ætla ég að gefa sjálfri mér næði til að skapa: lesa, sjá og túlka. Ég er að fara að grufla og grúska, skrifa, leikstýra, syngja og leika. Stundum kemur uppljómun frá alheiminum - það þarf ekki annað en stjörnubjarta nótt og kyrrð til að minna á hvað það er sem er yfir okkur og á hverju við stöndum.“

Hefur engar áhyggjur af Borgarleikhúsinu

Brynhildur segist nú ætla að sinna fjölskyldu sinni, manninum sínum, foreldrum, sem enn hafa heilsu, og dóttur sinni, sem eigi ekki skilið að þurfa alltaf að bíða.

„Það er búið að vera einstakur heiður að gegna þessu mikilvæga starfi og eiga í farsælu samstarfi við mitt trausta samstarfsfólk og stjórn leikfélagsins. Það þarf að vera jafnt í mínum vogarskálum og nú vantar mig að fylla á listarinnar megin – ég tel mig betur geta þjónað, sjálfri mér og öðrum, sem listamaður, leikstjóri og leikari – ég hef aldrei verið hrædd við að leggja sjálfa mig að veði fyrir það sem ég trúi á og stíg sátt og af afli inn í listina að nýju.“

Það hafi verið áskorun að stíga beint inn í í heimsfaraldur sem nýr stjórnandi. Starfsfólk leikhússins hafi unnið vel og hún gæti ekki verið stoltari af þeim árangri sem náðist og þeim stað sem leikhúsið er á.

„Gleymum ekki hver við erum: Við erum öflugasta og mest spennandi sviðslistastofnun landsins, við erum sterk og með jákvæða ímynd og ásýnd og eigum allt gott skilið til framtíðar. Ég hef engar áhyggjur af Borgarleikhúsinu. Hingað inn mun veljast góður kandídat, það er gott fólk víða, kunnáttufólk og sterkir stjórnendur. Það verður allt í lagi með okkur - lífið er nefnilega ferðalag - ekki áfangastaður. En nú segi ég bara áfram með smjörið og Borgarleikhúsið okkar góða lengi lifi!“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.