Morðtilræði, vændi og frændi sagður drepinn fyrir komuna til Íslands Jón Þór Stefánsson skrifar 19. febrúar 2025 08:03 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Úrskurður kærunefndar útlendingamála í máli móður og ungrar dóttur hennar hefur verið felldur úr gildi af Héraðsdómi Reykjavíkur. Í úrskurðinum hafði verið ákveðið að umsóknir mæðgnanna myndu ekki fá efnismeðferð um alþjóðlega vernd hér á landi.
Mæðgurnar eru frá ótilgreindu landi í Afríku. Frásögn konunnar af aðdraganda komu hennar til landsins er vægast sagt rosaleg. Konan yfirgaf Afríkulandið einungis sextán ára gömul en hún segir að þar hafi hún búið við erfiðar aðstæður og meðal annars sætt kynfæralimlestingum sem barn. Frá Afríkulandinu hafi hún farið til annars ótilgreinds lands en þar virðist hún hafa eignast kærasta. Sá mun hafa neytt hana í vændi. Konan hafi búið við það ástand í um það bil eitt og hálft ár, en það muni hafa haft bæði djúpstæð og neikvæð áhrif á hana. Elti hana og reyndi svo að ráða af dögum Síðan tókst konunni að flýja til Ítalíu upp á sitt einsdæmi. Kærastinn mun þó hafa elt hana þangað og þröngvað sér aftur í líf hennar. Á Ítalíu hafi konan því búið við alvarlegt heimilisofbeldi af hálfu þessa kærasta, en hann hafi einnig reynt að þvinga hana í vændi þar. Konan hafi hins vegar neitað að stunda vændi. En viðbrögð kærastans hafi verið þau að hann reyndi að ráða hana af dögum árið 2021. Konan varð fyrir miklum líkamlegum skaða vegna morðtilræðisins, en hún mun hafa dvalið á spítala í hálft ár. Fram kemur að konan beri sjáanlega áverka eftir þessa morðtilraun um allan líkamann, enda hafi verið um að ræða ákaflega grófa árás. Fyrrverandi kærastinn fékk tíu ára fangelsisdóm vegna árásarinnar árið 2022. Bróðir kærastans hafi drepið móðurbróðurinn Þá segir konan að kærastinn fyrrverandi hafi verið meðlimur í afrísku glæpagengi. Í kjölfar fangelsisdómsins hafi aðrir meðlimir gengisins því haft í hótunum við konuna og fjölskyldu hennar. Þessi glæpasamtök eru sögð með stöðu mafíu á Ítalíu, og að þau hafi mikil ítök þar í landi. Eftir að kærastinn hlaut dóm hafi kærastinn komið því í kring að móðurbróðir konunnar yrði myrtur af bróður kærastans. Þar að auki óttast konan nú að móðir hennar hafi hlotið sömu örlög og móðurbróðirinn, en hún hafi ekki heyrt í henni í lengri tíma. Í dómnum segir að í málinu liggi fyrir gögn um ofbeldi og ofsóknir sem konan hefur sætt. Í einhverjum tilfellum sé einungis við hennar eigin frásögn að styðjast, en dómur kærastans fyrir manndrápstilraunina liggur fyrir. Hins vegar eru ekki gögn til staðar sem styðja frásögn hennar af drápinu á móðurbróðurnum. Það er mat dómsins að sú frásögn sé þó „trúverðugri en ella“í ljósi gagna um banatilræðið gegn henni. Því verði að teljast eðlilegt að konan hafi ástæðu til að óttast um öryggi sitt og fjölskyldu sinnar á Ítalíu. Almennt í verri stöðu Konan sótti um alþjóðlega vernd hér á landi í maí 2023. Frá ítölskum yfirvöldum bárust þær upplýsingar að henni hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi. Það var á þeim forsendum, að hún væri með alþjóðlega vernd annars staðar, sem Útlendingastofnun komst að þeirri niðurstöðu að ekki ætti að taka umsókn konunnar og dóttur hennar, sem er eins til tveggja ára gömul, um alþjóðlega vernd á Íslandi fyrir. Kærunefnd útlendingamála staðfesti síðan þá niðurstöðu. Héraðsdómur hins vegar sagði að miklar líkur væru á því að staða konunnar á Ítalíu væru almennt verri en hjá fólki sem nýtur alþjóðlegrar verndar þar. Konan væri í sérstökum ástæðum sem mæltu til þess að rétt væri að taka umsókn hennar til efnismeðferðar. Þá væri augljóst að hagsmunir dótturinnar væru að fá samhliða niðurstöðu og móðirin og því mun hún líka fá efnismeðferð.
Dómsmál Flóttafólk á Íslandi Ítalía Kynferðisofbeldi Vændi Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira