Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Konudagurinn og rómantík
Konudagurinn var haldinn hátíðlega í gær þar sem rómantískir makar dekruðu við konurnar í sínu lífi.
Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður er þakklátur fyrir sína konu, Þórdísi Björk Þorfinssdóttur. Júlí birti mynd af þeim á lokakvöldi Söngvakeppninnar síðastliðið laugardagskvöld þar sem þau fluttu lagið Eldur.
Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Björn Skúlason, eiginmaður hennar fengu að smakka fyrsta eintakið af konudagskökunni, í tilefni þess að 30 ár eru liðin síðan fyrsta kaka ársins var kynnt.
Hjónin, Einar Þorsteinsson fráfarandi borgarstjóri og Milla Ósk Magnúsdóttir, rekstrarstjóri og yfirframleiðandi hjá ACT4, tilkynntu að þau ættu von á sínu öðru barni saman.
Í tilefni dagsins skipulagði Kolbrún Pálína Helgadóttir skvísuferð fyrir 23 konur sem endaði á Hótel Geysi í Haukadal.
Sjómaðurinn Enok Jónsson birti fallega mynd af sinni konu, Birgittu Líf Björnsdóttur, markaðsstjóra World Class, ásamt syni þeirra í tilefni dagsins.

Tónlistarkonan Svala Björgvins birti mynd af sér í tilefni dagsins.
Söngvakeppnin
VÆB-bræður, Matthías Davíð Matthíasson og Hálfdán Helgi Matthíasson, eru sigurvegarar Söngvakeppninnar sem fór fram síðastliðið laugardagskvöld og munu flytja lagið „Róa“ sem framlag Íslands í Eurovision árið 2025.
Skemmtikraftarnir Eva Ruza Miljevic og Hjálmar Örn Hjálmarsson mættu á svæðið og tóku svokallaðan pepphring með kynnum kvöldsins, Fannari Sveinssyni, Benedikt Valssyni og Gunnu Dís, áður en þau stigu á svið.
Vetrarfrí
Tónlistarkonan Birgitta Haukdal og fjölskylda skelltu sér á skíði til Madonna á Ítalíu í vetrarfríinu hjá Garðabæ.
Fanney Ingvarsdóttir, markaðsfulltrúi Bioeffect, og fjölskylda fóru ásamt nokkrum vinapörum í frí til Paradísareyjunnar Tenerife.
Þjálfarahjónin Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson slökuðu á í sveitinni.
Ísdrottningin Ásdís Rán Gunnarsdóttir og Þórður Daníel skelltu sér á skíði í Búlgaríu.
Sól og sæla á suðrænum slóðum
Fjöldi Íslendinga flýja vetrarkuldann á þessum tíma árs á heitari slóðir.
Helga Þóra Bjarnadóttir nýtur lífsins á Taílandi.
Fyrirsætan Birta Abiba spókaði sig um á bikiníi á ströndinni erlendis.
Sól í Reykjavík
Tónlistarmaðurinn Aron Can gaf fylgjendum innsýn í venjulegan dag í lífi sínu.
Tara Sif Birgisdóttir dansari og fasteignasali spókaði sig um í sólinni í Reykjavík.
Ofurskvísan og hlaðvarpsstýran Gugga í gúmmíbát fór út á lífið um helgina
Stoltur af sinni!
Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör er stoltur af sinni konu, Söru Linnet, sem útskrifaðist með mastersgráðu í mannauðsstjórnun í vikunni.
Afmæli
Hildur Sif Hauksdóttir, LXS skvísa, birti fallegt myndskeið í tilefni af 26 ára afmæli kærasta sín, Páls Orra Pálssonar.