Embiid frá út leiktíðina Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 28. febrúar 2025 22:46 Hefur lokið leik. AP Photo/Matt Slocum Joel Embiid, miðherji Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta, mun ekki spila meira á leiktíðinni vegna hnémeiðsla.
Hinn þrítugi Embiid er með betri miðherjum deildarinnar og á sínum degi einn besti leikmaður hennar. Hann var valinn verðmætasti leikmaður deildarinnar árið 2023 og hefur sjö sinnum tekið þátt í Stjörnuleiknum. Embiid hefur hins vegar verið að glíma við hnémeiðsli það sem af er leiktíð og verið skugginn af sjálfum sér þegar hann spilar. Hann hefur fengið mýmargar sprautur til að draga úr bólgum en 76ers hafa átt erfitt með að finna út nákvæmlega hvað er að. Philadelphia's Joel Embiid has been ruled out for the season. pic.twitter.com/5AHSkwHtPr— Shams Charania (@ShamsCharania) February 28, 2025 Hnéð hefur hins vegar ávallt bólgnað upp á ný og valdið Embiid gríðarlegum vandræðum. Hann hefur þrátt fyrir það skorað að meðaltali 24 stig í leik, tekið 8 fráköst og gefið 4.5 stoðsendingar. Varnarlega hefur hans hins vegar verið líkt og fiskur á þurru landi. Þar sem 76ers hafa aðeins unnið 20 af 58 leikjum sínum á leiktíðinni hefur því verið tekin sú ákvörðun að Embiid spili ekki meira fyrr en á næstu leiktíð. Liðið á í raun enn möguleika á að komast í umspilið en þarf nú að gera það án Embiid.
Körfubolti NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira