Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. mars 2025 22:47 Cole Palmer mun að öllum líkindum missa af landsleikjum Englands um næstu helgi. Mike Hewitt/Getty Images Cole Palmer, leikmaður Chelsea, mun að öllum líkindum missa af leikjum enska landsliðsins í komandi landsleikjaglugga.
Palmer var ekki í leikmannahópi Chelsea er liðið tapaði 1-0 gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag, en hann meiddist á æfingu á dögunum. Þetta var í fyrsta skipti síðan í apríl á síðasta ári sem Chelsea er án Palmers, en hann hefur verið í algjöru lykilhlutverki hjá þeim bláklæddu undanfarna mánuði. Það kom því líklega engum á óvart þegar nafn hans birtist á blaðinu þegar Thomas Tuchel, nýráðinn landsliðsþjálfari Englands, opinberaði enska landsliðshópinn í fyrsta skipti. Enzo Maresca, þjálfari Chelsea, hefur hins vegar ekki trú á því að Palmer geti tekið þátt í leikjum Englands gegn Albaníu og Lettlandi. „Ef ég á að vera hreinskilinn þá held ég að hann verði ekki klár í landsleikina,“ sagði Maresca á blaðamannafundi eftir tapið gegn Arsenal. „Hann meiddist á æfingu í gær og þetta eru vöðvameiðsli. Hann þarf að fara í myndatöku og það verður ekki fyrr en á mánudagsmorgun,“ bætti Maresca við. England leikur tvo heimaleiki í komandi landsleikjaglugga. Fyrri leikurinn er gegn Albaníu næstkomandi föstudag og sá seinni gegn Lettlandi á mánudaginn eftir viku.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Hvers konar spurning er þetta?“ Sport KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Íslenski boltinn Lando Norris stofnar sitt eigið lið Formúla 1 Heims- og Ólympíumeistari lenti í árekstri og getur ekki æft Sport Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Fótbolti Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Körfubolti Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Fótbolti Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Íslenski boltinn Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt Fótbolti Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Handbolti Fleiri fréttir Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Dagskráin í dag: Einn leikur á sviðið út af fyrir sig Ndiaye til Manchester City Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Mbaye til Aston Villa Ensku félögin með bókhaldsbrellur Arteta vill bæta við hópinn í dag „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Liverpool að fá tvo sem hjálpa þeim ekkert í ár Man. City kaupir brasilískan vængmann Barcola kominn til Liverpool Glasner tekur sinn besta mann til Forest Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Sjá meira