„Eru sex mörk ekki nóg til að þú haldir kjafti?“ Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2025 08:31 Arda Güler sussaði á Dominik Szoboszlai í sigri Tyrkja á sunnudaginn. Getty/David Balogh Eftir að hafa tapað illa með Ungverjum gegn Tyrkjum í umspili um sæti í A-deild Þjóðadeildar ákvað Liverpool-stjarnan Dominik Szoboszlai samt að skjóta á hinn tvítuga Arda Güler sem nú segir Szoboszlai algjöran brandara.
Tyrkland vann einvígi þjóðanna samtals 6-1 og mun því spila í A-deildinni á næstu leiktíð Þjóðadeildarinnar, haustið 2026. Eftir seinni leik liðanna birti ungverskur miðill mynd á Instagram af Güler að sussa á Szoboszlai og það virðist hafa farið illa í þann síðarnefnda sem kommentaði á myndina: „1088“. Þar var Szoboszlai að vísa til takmarkaðs mínútufjölda Güler í leikjum með Evrópu- og Spánarmeisturum Real Madrid á leiktíðinni. Güler ákvað að svara fyrir sig og skrifaði í Instagram Story: „Þessi gæi er brandari. Eru sex mörk ekki nóg til að þú haldir kjafti?“ Arda Güler birti þessa mynd og skrifaði ummæli með henni.Skjáskot/Instagram Í viðtali við Marca segist Güler svo engan veginn vera að gefast upp á því að fá takmarkaðan spiltíma hjá Real Madrid. „Real Madrid setti upp áætlun fyrir mig og ég trúi enn á hana. Ég er viss um að ég mun ná árangri hjá Real Madrid, ég er meira að segja búinn að kaupa hús í Madrid. Ég legg hart að mér og ég er alltaf tilbúinn að spila, eins og sást í leikjunum við Ungverjaland,“ sagði Güler sem skoraði eitt marka Tyrklands í 3-0 sigrinum í Ungverjalandi á sunnudaginn. „Ég kom til Real Madrid til að spila og verða mikilvægur hluti af þessu liði. Ég mun ekki hætta fyrr en ég næ því,“ sagði Güler.
Þjóðadeild karla í fótbolta Spænski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport Brentford tók Tottenham í karphúsið Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Fleiri fréttir Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Espanyol - Real Madrid | Madrídingar mættir undir stjórn Mourinho Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin Stefán Teitur með tvennu í þægilegum bikarsigri Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Sjá meira