Viðskipti innlent

Fátt rök­rétt við lækkanirnar

Árni Sæberg skrifar
Snorri Jakobsson fylgist vel með þróun hlutabréfamarkaða.
Snorri Jakobsson fylgist vel með þróun hlutabréfamarkaða. Vísir/Arnar

Hlutabréfagreinandi segir ljóst að verðlækkanir á hlutabréfum hér á landi megi rekja til þess að fjárfestar leitast nú við að flýja áhættu og selja hlutabréf sem bera mikla áhættu. Lítil rök séu á bak við lækkanir, til að mynda á íslenskum arðgreiðslufélögum sem enga tengingu hafa við Bandaríkjamarkað.

Hlutabréfaverð hefur farið hríðlækkandi víðast hvar í heiminum undanfarna daga, eftir að Donald Trump tilkynnti um hækkun allra innflutningstolla í Bandaríkjunum. 

Úrvalsvísitalan lækkaði hressilega

Markaðurinn hér á landi hefur ekki farið varhluta af ástandinu en þegar Kauphöllin opnaði í morgun hafði úrvalsvísitalan lækkað um rúmlega fimm prósent. Markaðurinn hefur þú að einhverju leyti rétt úr kútnum eftir því sem liðið hefur á daginn.

Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital, segir í samtali við fréttastofu að skýringin sé helst sú að fjárfestar séu að flýja áhættu og draga úr áhættusækni í stöðum sínum, með því að selja hlutabréf sem bera mikla áhættu.

Erfitt að segja til um framhaldið

Snorri segir óskaplega erfitt að spá fyrir um framhaldið á alþjóðamörkuðum. Það hafi ekki verið mikið tilefni til bjartsýni eftir að Trump var kosinn Bandaríkjaforseti, í ljósi þeirra kosningaloforða sem hann hafði gefið.

„Það var nokkuð ljóst að það var frekar tilefni til þess að vera varfærinn. Hvað muni gerast? Það er auðvitað það sem gerist alltaf þegar menn eru að fara úr mjög skuldsettum stöðum og draga úr áhættu, þá lækka félög þar sem lítil rök liggja að baki lækkun.“

Það sjáist nú þegar. Gengi bréfa íslenskra arðgreiðslufélaga, sem lítil sem engin tengsl hafi við Bandaríkjamarkað, hafi lækkað mjög hraustlega. Þó að áhrif tollastefni Trumps hafi engin áhrif á þau.

„Þetta er mikið til hræðsluviðbragð. Það er fátt rökrétt við mikið af þessum lækkunum. Alveg eins og það var fátt rökrétt við það að vera mjög áhættusækinn í kjölfar þess að Trump vann.“


Tengdar fréttir

Áfram lækkanir við opnun markaða í Evrópu

Markaðir í Evrópu hafa tekið mikla dýfu við opnun í morgun. Vísitalan í þýsku kauphöllinni lækkuðu um 10 prósent við opnun í morgun en sú lækkun hefur þó eitthvað gengið til baka.

Enn meiri lækkanir í Asíu við opnun markaða

Markaðir í Asíu tóku mikla dýfu við opnun í morgun og ekkert lát er á lækkunum á hlutabréfaverði frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti fyrirætlanir sínar um miklar tollaálögur sem hann hyggst leggja á öll ríki. Nikkei vísitalan í Japan lækkaði um heil 6,5 prósent í morgun.

Minni fjár­festar flýja óvissu og um 600 milljarða markaðsvirði þurrkast út

Þegar litið er til helstu hlutabréfamarkaða beggja vegna Atlantshafsins þá hefur aðeins Nasdaq-vísitalan í Bandaríkjunum, sem inniheldur stærstu tæknifyrirtækin, lækkað meira í virði fá áramótum en íslenska Úrvalsvísitalan. Markaðir hafa verið í frjálsi falli vegna óvissunnar eftir Trump boðaði umfangsmikla tolla á viðskiptaþjóðir Bandaríkjanna og á þessu ári hafa liðlega sex hundrað milljarðar af markaðsvirði félaga á Aðallista Kauphallarinnar þurrkast út, en verðlækkun síðustu daga er meðal annars drifin áfram af veðköllum og sölu smærri fjárfesta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×