Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Lovísa Arnardóttir skrifar 14. apríl 2025 11:21 Bolli Héðinsson hagfræðingur fer fyrir samtökunum Þjóðareign. Samsett Rúm 80 prósent þjóðarinnar vilja að veiðigjöld taki mið af raunverulegu aflaverðmæti. Það eru niðurstöður könnunar sem Gallup framkvæmdi fyrir félagasamtökin Þjóðareign. Þar var spurt hversu hlynnt eða andvígt fólk væri því að útgerðin greiði gjald sem taki mið af raunverulegu aflaverðmæti fyrir afnot af fiskimiðunum.
Alls voru 42,8 prósent alfarið hlynnt, 17,3 prósent mjög hlynnt og 15 prósent frekar hlynnt. 10,3 prósent sögðu hvorki né en andvíg voru samanlagt 9,2 prósent. Um 80 prósent samanlagt eru hlynnt því að útgerðir greiði gjald sem taki mið af raunverulega aflaverðmæti. Þjóðareign Ef litið er til bakgrunnsbreyta má sjá að niðurstöðurnar eru nokkuð líkar sama hvaða breyta er litið til en taka þó nokkrum breytingum þegar litið er til þeirra stjórnmálaflokka sem fólk styður. Sem dæmi segja 84 prósent kjósenda Pírata að þau séu alfarið hlynnt fullyrðingunni og 72 prósent kjósenda Samfylkingarinnar. Ef litið er til annarra ríkisstjórnarflokka þá má sjá að 62 prósent kjósenda Viðreisnar eru alfarið hlynnt og 23 prósent mjög hlynnt og 59 prósent kjósenda Flokks fólksins alfarið hlynnt og 17 prósent mjög hlynnt. Hér má sjá niðurstöður sundurliðaðar eftir því hvaða flokk fólk myndi kjósa í Alþingiskosningum. Þjóðareign Mesta andstaðan er hjá kjósendum Framsóknarflokksins þar sem 17 prósent segjast frekar andvíg og fimm prósent mjög andvíg og hjá kjósendum Miðflokksins þar sem átta prósent segjast alfarið á móti, sjö prósent mjög andvíg og 17 prósent frekar andvíg. Mesta andstaðan er þó hjá fólki sem skilar auðu eða myndi ekki kjósa í Alþingis. Þar segja tólf prósent að þau séu alfarið andvíg, tólf prósent frekar andvíg og 17 prósent mjög andvíg. Í tilkynningu kemur fram að um hafi verið að ræða netkönnun með 1.714 manna úrtaki 18 ára og eldri af öllu landinu. Spurningunni svöruðu alls 823 og var þátttökuhlutfall því 48 prósent. Þörf leiðrétting ekki breyting Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra lagði í síðasta mánuði fram frumvarp sem gerir ráð fyrir því að tvöfalda veiðigjaldið. Í könnun Maskínu um viðhorf til frumvarps ráðherra í upphafi mánaðar kom fram að rúmlega sextíu prósent þjóðarinnar eru hlynnt frumvarpinu. Þar kom einnig fram að um 94 prósent töldu útgerðirnar geta greitt hærri veiðigjöld en þær gera í dag. Í tilkynningu stjórnvalda um breytingu á veiðigjöldunum kom fram að við skoðun þeirra á veiðigjöldunum hafi niðurstaðan verið sú að sú aðferð sem hefur verið notuð til að reikna gjöldin hafi ekki endurspeglað raunverulegt aflaverðmæti nytjastofna. Frumvarpinu er því ætlað að bæta úr því. „Ekki er um að ræða breytingar á því fiskveiðistjórnunarkerfi sem verið hefur við lýði á Íslandsmiðum undanfarna áratugi, heldur þarfa leiðréttingu,“ sagði í tilkynningunni.
Sjávarútvegur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Félagasamtök Skoðanakannanir Skattar og tollar Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gætu skilað allt að tvöfalt meiri tekjum í ríkissjóð að sögn ráðherra. Forstjóri útgerðarfyrirtækis segir málið aðför að landsbyggðinni, og illa unnið í þokkabót. 25. mars 2025 21:02 „Þessi leiðrétting er hið rétta í stöðunni“ Atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra kynntu í dag drög að lagabreytingum á lögum um veiðigjöld. Gagnrýni barst áður en frumvörpin voru kynnt en fjármálaráðherra segir hana vera langsótta. Samkvæmt greiningu ráðuneytanna sé ljóst að veiðigjöldin hafi átt að vera mun hærri. 25. mars 2025 17:00 Útgerðin segir alrangt að veiðigjald hafi lækkað með núverandi lögum Útgerðin hefði greitt um tíu milljörðum minna í veiðigjöld á árunum 2011 til 2017 ef núgildandi lög um veiðigjöld hefðu gilt á tímabilinu. Útgerðin telur rangt að veiðigjöld hafi lækkað síðustu ár með tilkomu nýrra laga. 11. febrúar 2021 20:00 Mest lesið „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Viðskipti innlent Boða alvöru breytingar í jafnréttismálum efnahags- og atvinnulífs Atvinnulíf Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Viðskipti innlent Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Samstarf KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Viðskipti innlent Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs Viðskipti innlent Jón Guðni tekur við formennsku Viðskipti innlent Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Viðskipti innlent VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi Viðskipti innlent Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekkert samtal í gangi milli stjórnvalda og sjávarútvegs VÍS opnar aftur skrifstofu á Akranesi KS fyrstir til að nýta sér nýja varaleið um gervihnetti Jón Guðni tekur við formennsku Algengast að óljósar starfslýsingar valdi togstreitu og gremju Sigurjón Örn tekur við af Sveini hjá Kletti „Þar skeikar milljörðum í vanmati ráðuneytisins“ Hætta við flug til Madeira, Pula, Düsseldorf og Hamborgar Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Um 80 prósent vilja að gjöld útgerða taki mið af raunverulegu aflaverðmæti Álögur ríkisins á bankana lendi að miklu leyti á almenningi Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka Íslandshótel taka að óbreyttu yfir rekstur Nordica og Natura Ánægjulegt að breið sátt liggi fyrir um uppgjör vegna ÍL-sjóðs Hafa samþykkt tillögu um uppgjör ríkisins á bréfum ÍL-sjóðs Icelandair skrúfar fyrir fría gosið Bein útsending: Ársfundur Seðlabankans Sýknaður í Ímon-málinu tíu árum seinna Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Sjá meira
Segir útlitið svart fyrir sjávarútveginn og breytingarnar illa unnar Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gætu skilað allt að tvöfalt meiri tekjum í ríkissjóð að sögn ráðherra. Forstjóri útgerðarfyrirtækis segir málið aðför að landsbyggðinni, og illa unnið í þokkabót. 25. mars 2025 21:02
„Þessi leiðrétting er hið rétta í stöðunni“ Atvinnuvegaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra kynntu í dag drög að lagabreytingum á lögum um veiðigjöld. Gagnrýni barst áður en frumvörpin voru kynnt en fjármálaráðherra segir hana vera langsótta. Samkvæmt greiningu ráðuneytanna sé ljóst að veiðigjöldin hafi átt að vera mun hærri. 25. mars 2025 17:00
Útgerðin segir alrangt að veiðigjald hafi lækkað með núverandi lögum Útgerðin hefði greitt um tíu milljörðum minna í veiðigjöld á árunum 2011 til 2017 ef núgildandi lög um veiðigjöld hefðu gilt á tímabilinu. Útgerðin telur rangt að veiðigjöld hafi lækkað síðustu ár með tilkomu nýrra laga. 11. febrúar 2021 20:00