Innlent

Kári segist hafa verið rekinn vegna lyga­sögu

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Kári Stefánsson stofnaði Íslenska erfðagreiningu árið 1996.
Kári Stefánsson stofnaði Íslenska erfðagreiningu árið 1996. Vísir/Vilhelm

Kári Stefánsson, stofnandi og fráfarandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir aðferð móðurfyrirtækisins Amgen við starfslok sín virðast við fyrstu sýn markast af fantaskap. Gróusaga um að hann hygðist standa í vegi fyrir fullri sameiningu Amgen og Íslenskrar erfðagreiningar hafi hins vegar verið meginorsök skyndilegrar brottfarar sinnar.

Íslensk erfðagreining var stofnuð árið 1996 af Kára Stefánssyni og hann hefur frá upphafi gegnt forstjórastöðu hjá fyrirtækinu. Árið 2012 keypti lyfjafyrirtækið Amgen sem er með höfuðstöðvar í Kaliforníu Íslenska erfðagreiningu. Kári segir í tilkynningu að hann hafi einmitt verið staddur á fundi í höfuðstöðvum Amgen þegar uppsögn hans bar að.

„Ég var á þriggja daga fundi hjá Amgen í Thousand Oaks í Kaliforníu ásamt félögum mínum Patrick Sulem og Daníel Guðbjartssyni. Snemma um eftirmiðdaginn síðasta fundardaginn sem var fyrsti maí var ég sóttur inn á fund og beðinn að fara yfir í aðra byggingu að hitta lögfræðing sem ætlaði að ræða við mig hugmyndir mínar um samvinnu við Abu Dhabi. Þegar þangað kom var mér umsvifalaust sagt að störfum mínum fyrir ÍE væri lokið,“ segir Kári.

Gróusaga kveikjan að málinu

Hann segist ekki einu sinni hafa fengið að ræða málið við félaga sína og samstarfsmenn þar sem Amgen sendi út fréttatilkynningu sína strax kvöldið eftir. Gróusaga um afstöðu sína til fullrar innlimunar Íslenskrar erfðagreiningar í Amgen hafi spilað inn í.

„Yfirlögfræðingur Amgen tjáði mér að þeir hefðu beitt þessum aðferðum vegna þess að einn af félögum mínum í stjórnunarteymi ÍE hefði tjáð Amgen að ég hefði á fundi nokkrum dögum fyrir fyrsta maí sagt að ég myndi gera allt sem í mínu valdi stæði til þess að koma í veg fyrir sameiningaráformin. Ég sagði þetta aldrei og hef ekki hugmynd um það hvernig þessi saga varð til en ég er sammála lögfræðingnum að Amgen varð að bregðast við henni með því að brýna öxina svolítið meira,“ segir Kári.

Mun dást að ÍE úr fjarlægð

Kári segist þakklátur fyrir það að Íslensk erfðagreining sé í höndum hæfileikaríkra vísindamanna sem muni halda áfram að vera leiðandi á heimsvísu á sviði mannerfðarannsókna.

„Þessi hópur á engan sinn líkan, hvergi í veröldinni. Ég mun sakna daglegra samskipta við hann en mun svo sannarlega dást að honum úr fjarlægð. Ég kem líka til með að sakna samskipta við skemmtilegt og hæfileikaríkt fólk hjá Amgen sem hafa verið frábærir samstarfsmenn. Þetta eru einstaklingar einbeittir í tilraun sinni til þess að búa til ný og betri lyf við vondum sjúkdómum. Það er fátt fallegra,“ segir Kári Stefánsson.


Tengdar fréttir

Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu

Kári Stefánsson, stofnandi og forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur látið af störfum sem forstjóri hjá fyrirtækinu. Unnur Þorsteinsdóttir og Patrik Sulem taka við sem nýir framkvæmdastjórar Íslenskrar erfðagreiningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×