Hristi af sér meiðsli á „ódauðlega“ ökklanum og fagnaði sigri Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. maí 2025 11:00 Anthony Edwards í viðtali eftir sigur Minnesota Timberwolves á Golden State Warriors. getty/David Berding Þrátt fyrir að hafa meiðst á ökkla í fyrri hálfleik skoraði Anthony Edwards tuttugu stig þegar Minnesota Timberwolves jafnaði metin í einvíginu gegn Golden State Warriors með 117-93 sigri í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Staðan í einvíginu er jöfn, 1-1.
Edwards meiddist um miðjan 2. leikhluta og fór til búningsherbergja til að fá meðhöndlun. Þjálfari Minnesota bjóst við að Edwards hefði lokið leik. „Ég hafði miklar áhyggjur. Ég bjóst ekki við að sjá hann aftur inni á vellinum í leiknum ef ég á að vera heiðarlegur,“ sagði Chris Finch. Edwards hristi hins vegar meiðslin af sér og sneri aftur á völlinn í seinni hálfleik. Og þar skoraði hann þrettán af tuttugu stigum sínum. Edwards tók einnig níu fráköst, gaf fimm stoðsendingar og stal boltanum þrisvar sinnum. WOLVES EVEN SERIES BEHIND BALANCED ATTACK 🐺Randle: 24 PTS | 11 AST | 7 REB Ant: 20 PTS | 9 REB | 5 AST | 3 STLNAW: 20 PTS | 4 3PMMcDaniels: 16 PTS | 3 STL | 3 BLK#NBAPlayoffs presented by Google pic.twitter.com/hf5nVjwQrJ— NBA (@NBA) May 9, 2025 „Minn maður er með ódauðlegan ökkla,“ sagði samherji Edwards, Josh Minott, eftir leikinn. Stephen Curry lék ekki með Golden State vegna meiðsla sem hann varð fyrir í fyrsta leiknum sem Stríðsmennirnir unnu, 88-99. Jimmy Butler skoraði sautján stig fyrir Golden State í nótt en liðið komst lítt áleiðis gegn sterku liði Minnesota. Julius Randle var stigahæstur Úlfanna með 24 stig auk þess sem hann tók sjö fráköst og gaf ellefu stoðsendingar. Nickeil Alexander-Walker skoraði tuttugu stig líkt og Edwards.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Sjá meira