Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 10. maí 2025 15:18 Venera-4 geimfar áþekkt því sem hrapaði til jarðar í morgun. Wikimedia Sovéskt geimfar sem skotið var í loft 1972 og átti að fara í sporbaug um Venus er talið hafa hrapa til jarðar snemma í morgun.
Evrópska geimvísindastofnunin hefur verið að fylgjast með geimfarinu Kosmos 482 og segir það hafa sést síðast á ratsjám þeirra yfir Þýskalandi. Gert er ráð fyrir því að Kosmos hafi þegar hrapað til jarðar en ekkert tjón hefur verið tilkynnt vegna þessa. Kosmos 482 er, samkvæmt umfjöllun NBC, hluti af svokölluðu Venera-verkefni sovésku geimstofnunarinnar. Litlum geimförum var skotið í loft og þeim ætlað að rannsaka reikistjörnuna Venus. Tókst að lenda tíu þessara geimfara á yfirborði Venus en eldflaugin sem bar Kosmos 482 bilaði. Efri hluti hennar festist á sporbaugi um jörðina. Síðastliðin 53 árin hefur geimfarið flogið umhverfis jörðina í minni og minni sporbaug þar til hún fór það nálægt jörðinni að hún hrapaði. Kosmos er harðgert geimfar og smíðað til þess að geta haft lendingu á Venus af og því er ólíklegt að það hafi fuðrað upp í lofthjúpi jarðarinnar. Fram kemur á bloggsíðu Evrópsku geimstofnunarinnar að gervitungl og eldflaugahlutar hrapi til jarðar nær daglega og að tjón af þeirra völdum sé mjög sjaldgæft. Þar segir jafnframt að hættan á því að hrap gervitungls valdi tjóni á fólki sé mjög lítil. Líkurnar nemi um einum á móti hundrað milljörðum árlega. Til samanburðar er maður um 65 þúsund sinnum líklegri til að verða fyrir eldingu á ári.
Geimurinn Vísindi Sovétríkin Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira