Neytendur

Verð á inn­lendri dag­vöru hækkar hraðar en verð á er­lendri

Atli Ísleifsson skrifar
Þótt maímánuður sé ungur eru vísbendingar um að hækkunartakturinn í langstærstu verslunum, Bónus og Krónunni, sé að róast.
Þótt maímánuður sé ungur eru vísbendingar um að hækkunartakturinn í langstærstu verslunum, Bónus og Krónunni, sé að róast. Vísir/Vilhelm

Verðlag á matvöru hefur hækkað um meira en hálft prósent þriðja mánuðinn í röð, samkvæmt mælingum Verðlagseftirlits ASÍ. Mælingarnar benda til þess að innlend dagvara hækki mun hraðar en erlend. 

Í tilkynningu frá ASÍ segir að verðlag á dagvöru hafi hækkað um 0,61 prósent milli mars og apríl samkvæmt dagvöruvísitölu ASÍ. Það hafi verið þriðja mánuðinn í röð þar sem verðlag á matvöru hafi hækkað um meira en hálft prósent, sem sé meðalhækkun á matvöru undanfarið ár og jafngildi 6 próenta ársverðhækkun. Þó sé útlit fyrir að hækkanirnar séu að dragast saman að magni og umfangi.

„Áhrifin eru að mestu rekjanleg til tveggja þátta. Sá fyrri er hækkun á verðlagi innlendra vörumerkja, en það hefur frá áramótum hækkað mun hraðar en verðlag erlendra vörumerkja. Munurinn á hækkunartaktinum var mestur í janúar og febrúar.

Síðari þátturinn er slaknandi verðaðhald hjá Nettó og Kjörbúðinni, sem hafa haldið aftur af verðhækkunum frá miðju síðasta ári en hafa gefið eftir frá áramótum.

Verðlækkunin í fyrra hjá Nettó og Kjörbúðinni vegur á móti miklum hækkunum í byrjun þessa árs og er árshækkun hjá þessum tveimur keðjum því í lægri kantinum. Sú verslun sem hækkar mest á milli ára, og þar sem verðlag hækkaði um nær 11% milli janúar og apríl, er Iceland, sem tók í apríl fram úr 10-11 sem dýrasta verslun landsins. Hvorki Iceland né 10-11eru þó veigamiklar í dagvöruvísitölunni.

Grænir punktar hækka aftur

Hluta af hækkunum dagvöruvísitölunnar síðustu mánuði má rekja til verðbreytinga Kjörbúðarinnar. Í júlí 2024 var hluti af vörum Kjörbúðarinnar merktur með grænum punkti og lækkaður í verði, að meðaltali um 9%. Vörurnar áttu samkvæmt Kjörbúðinni að vera „á sambærilegu verði og í lágvöruverslun“. Undanfarna mánuði hefur verð á vörum sem voru merktar með græna punktinum farið hækkandi að nýju. Stærsta stökkið var upp um 11% í mars.

Í apríl hækkaði verð á öllum vörum í Kjörbúðinni að meðaltali um 1,6%.

Sumargrillið verður hratt dýrara

Verð á nautakjöti hefur hækkað hratt á þessu ári og hafa margar vörur í flokknum hækkað meira á þessu ári (janúar-maí 2025) en á átta mánuðunum þar á undan (maí-janúar 2024). Á grafinu hér að neðan eru birtar vörur í flokknum sem verðlagseftirlitið hefur gögn fyrir hjá Bónus og Krónunni aftur til maí í fyrra. Hækkunin í byrjun þessa árs vegur þungt — og hamborgarar fara ekki varhluta af því.

Einnig gæti orðið dýrara að bjóða upp á bernaise-sósu með steikinni. Verð á Stjörnueggjum hækkaði um 9% í maí. Vert er að benda á að verð á Nesbú-eggjum hefur hækkað hægar en uppsöfnuð árshækkun er engu að síður 6,5% að meðaltali í stærstu fjórum verslunarkeðjunum; Bónus, Krónunni, Hagkaup og Nettó.

Dregur úr hækkunum í maí

Þótt maímánuður sé ungur eru vísbendingar um að hækkunartakturinn í langstærstu verslunum, Bónus og Krónunni, sé að róast. Eftirfarandi graf ber saman hlutfall vara sem hækka í verði í Krónunni milli 8. maí og 8. apríl og svo koll af kolli 8. hvers mánaðar til undirritunar kjarasamninga. Í grafinu fyrir Bónus var stuðst við þá mælingu sem lá næst mánaðarmótum hverju sinni. Greinilegt er að breiðustu verðhækkanirnar komu til milli janúar- og febrúarmælinganna hjá báðum verslunum.

Þær hækkanir sem enn eiga sér stað eru því á mjórri grunni nú, þ.e. drifnar áfram af færri vörum. Af stærstu fjórum verslunum landsins er Nettó sú eina sem enn heldur uppi hækkunartakti síðustu tveggja mánaða,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×