Lífið

Segist á­stæða þess að Taylor Swift sé ekki lengur „heit“

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump og Taylor Swift.
Donald Trump og Taylor Swift. EPA

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir stórstjörnuna Taylor Swift ekki lengur vera „heita“. Forsetinn vakti athygli á þessu á samfélagsmiðli sínum í dag og spurði hvort einhver hefði tekið eftir því að það væri hans vegna sem þessi breyting hefði átt sér stað.

„Hefur einhver tekið eftir því að síðan ég sagði: „ÉG HATA TAYLOR SWIFT“, er hún ekki lengur „heit?““

Þetta skrifaði Trump, sem er 78 ára gamall og forseti Bandaríkjanna, á Truth Social í dag. Líklegt er að Trump sé að tala um vinsældir stórstjörnunnar en ekki útlit hennar.

Hvert tilefni skrifa forsetans er, það er þó önnur spurning.

Trump hefur þó nokkrum sinnum í gegnum árin skotið föstum skotum á Swift, sem lýsti yfir stuðningi við Joe Biden í forseta kosningunum 2020 og við Kamölu Harris í kosningunum í fyrra.

Sjá einnig: „Barn­lausa katta­konan“ lýsir yfir stuðningi við Har­ris

Þar áður, árið 2018, lýsti hún yfir stuðningi við Demókrataflokkinn í þingkosningum þessa árs.

Sjá einnig: Trump-liðar telja sig svikna af Taylor Swift

Eftir stuðningsyfirlýsingu Swift við Harris skrifaði Trump á samfélagsmiðil sinn að hann hataði Taylor Swift.

Árið 2023 sagði Trump þó að honum þætti Swift vera falleg.

„Mér finnst hún falleg. Mjög falleg. Mér finnst hún mjög falleg. Ég held að hún sé frjálslynd. Henni er líklega ekki vel við Trump,“ sagði Trump samkvæmt Variety.

„Mér heyrist hún vera mjög hæfileikarík. Ég held hún sé mjög falleg, í rauninni óvenjulega falleg.“

Þegar kemur að vinsældum Swift, þá varð hún árið 2023 milljarðamæringur, í dölum talið. Samkvæmt Forbes varð hún þá fyrst allra tónlistarmanna milljarðamæringur að mestum hluta vegna tekna af tónlist. Hún er nú metin á 1,6 millarð dala en það samsvarar um 207 milljörðum króna.

Samkvæmt Forbes var það að mestu rakið til Eras-tónleikaferðalags hennar og virði laga hennar.

Tónleikaferðalagið Eras stóð yfir frá mars 2023 til desember í fyrra og spilaði hún 149 tónleika í 51 borg, víðsvegar um heiminn. New York Times segir það hafa verið arðbærasta tónleikaferðalag sögunnar og að Swift hafi halað inn rúmum tveimur milljörðum dala fyrir miða.

Það er meira en tvöfalt meira en nokkrum öðrum tónlistarmönnun hefur tekist. Coldplay halaði inn um milljarði dala fyrir 156 tónleika ferðalag um heiminn, sem lauk fyrr árið 2024 og varð það þá tekjuhæsta tónleikaferðalag sögunnar.


Tengdar fréttir

Býður Taylor barn

Auðkýfingurinn Elon Musk er ólíkindatól. Í dag skrifaði hann einkennilega færslu á samfélagsmiðli sínum X þar sem hann býðst til þess að gefa söngkonunni Taylor Swift barn eftir að hún gaf út stuðningsyfirlýsingu við Kamölu Harris forsetaefni Demókrata.

Taylor Swift orðin milljarðamæringur

Tónlistarkonan Taylor Swift hefur hagnast gífurlega af nýjasta tónleikaferðalagi sínu, sem kallast Eras, og kvikmyndin um þetta ferðalag er að gera góða hluti í kvikmyndahúsum um allan heim. Þar að auki var hún að endurútgefa níu ára gamla plötu, sem talin er að verði með vinsælli plötum ársins.

„Það spurði þig enginn“

Tónlistarmanninum Pharrell Williams þykir ekki mikið til þess koma þegar aðrar stjörnur tjá sig um pólitík. Hann segist sjálfur halda sínum skoðunum út af fyrir sig.

Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA

Velgengni bandarísku söngkonunnar Taylor Swift virðist engan endi ætla að taka en í nótt sópaði hún til sín verðlaunum á verðlaunahátíð MTV sjónvarpsstöðvarinnar, Video Music Awards eða VMA. Hún gerði sér lítið fyrir og tók sjö verðlaun með sér heim. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.