Þrír réðust á ungan mann í Árbænum og flúðu á brott Jón Þór Stefánsson skrifar 18. maí 2025 07:31 Málið er til rannsóknar lögreglu. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um þrjá menn sem réðust að einum í Árbænum í fyrrakvöldi eða nótt. Þeir eru sagðir hafa beitt höggum og spörkum gegn fórnarlambi sínu sem var ungur maður.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu, en þar segir að þremenningarnir hafi síðan flúið á brott, og nú sé málið í rannsókn. Í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem sér um löggæslu í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, var tilkynnt um ökumann sem hafði ekið utan í annan bíl og svo ekið á brott. Ökumaðurinn fannst í nágrenninu og var grunaður um akstur undir áhrifum áfengis. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Samkvæmt dagbókinni verður hann þar þangað til hann verður skýrsluhæfur. Í miðbænum var tilkynnt um mann sem hafði kastað glerglasi í annan mann í miðborginni. Árásarmaðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. Fram kemur að sá sem fékk glerglasið í sig hafi hlotið minni háttar áverka. Í umdæmi lögreglustöðvar 4, sem sér um löggæslu í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi, var maður handtekinn eftir að hafa slegið ungmenni. Fram kemur að maðurinn hafi verið ölvaður og að hann muni vera vistaður í fangaklefa þar til hann verði hæfur til að gefa skýrslu.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Erlent Hreyfingar mælast og aukin vöktun Innlent Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Fleiri fréttir Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Sjá meira