Lægð nálgast sem dýpkar ört Atli Ísleifsson skrifar 2. júní 2025 07:12 Gular viðvaranir taka gildi vegna norðan hríðar eða snjókomu á norðan og austanverðu landinu í dag, en þær appelsínugulu á norðan-, austan- og suðaustanverðu landinu aðfararnótt morgundagsins. Veðurstofan Lægð er nú sunnan við landið sem dýpkar ört og fer til austurs. Spár gera ráð fyrir að lægðarmiðjan verði nærri Færeyjum fyrir hádegi á morgun og þrýstingur í miðjunni þá 966 millibör sem er óvenjulega lág tala á þessum árstíma.
Á vef Veðurstofunnar segir að þessi lægð muni valda norðan óveðri á landinu á næstunni. Versta veðrinu er spáð aðfaranótt þriðjudags og á þriðjudaginn. Gular og appelsínugular veðurviðvaranir verið gefnar út. Gular viðvaranir taka gildi vegna norðan hríðar eða snjókomu á norðan og austanverðu landinu í dag, en þær appelsínugulu á norðan-, austan- og suðaustanverðu landinu aðfararnótt morgundagsins. Spáin í dag gerir ráð fyrir að það gangi í norðan strekking, tíu til átján metrum á sekúndu. „Rigning eða slydda með köflum um landið norðanvert og snjókoma til fjalla. Það rignir á Suðausturlandi fram á kvöld, en suðvestantil verður væntanlega þurrt. Veður fer kólnandi í dag og í kvöld og nótt má búast við samfelldri slyddu eða snjókomu á Norðaustur- og Austurlandi þegar bætir í úrkomu á þeim slóðum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun er útlit fyrir norðan hvassviðri nokkuð víða, en stormur í vindstrengjum við fjöll á suðurhelmingi landsins. Snjókoma eða slydda norðan- og austantil á landinu um morguninn, en síðan hlýnar lítillega sem veldur því að úrkoman fer yfir í rigningu í láglendi og verður hún væntanlega í talsverðu magni. Sunnan heiða verður minni úrkoma, en einhver þó. Hiti á morgun 1 til 9 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan. Áðurnefnd lægð ætlar síðan að verða þaulsetin austan við landið og þó hún verði farinn að grynnast og mesti vindurinn úr henni eftir miðja vikuna, þá eru líkur á að hún nái að viðhalda norðlægri átt með úrkomu og köldu veðri á norðanverðu landinu fram í vikulokin. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðan 13-23 m/s, hvassast í vindstrengjum á suðurhelmingi landsins. Snjókoma eða slydda norðan- og austantil á landinu um morguninn, en síðan talsverð rigning á láglendi og slydda eða snjókoma til fjalla. Úrkomuminna sunnan heiða. Hiti 1 til 9 stig, kaldast í innsveitum norðanlands. Á miðvikudag: Norðanátt, víða á bilinu 10-15 m/s. Rigning á norðanverðu landinu og hiti 2 til 7 stig. Þurrt sunnantil með hita 7 til 13 stig. Á fimmtudag: Norðan 5-13 og rigning eða slydda með köflum, en þurrt á sunnanverðu landinu. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Norðan 3-10 og lítilsháttar rigning eða slydda norðanlands, en líkur á síðdegisskúrum sunnantil. Áfram kalt í veðri, einkum fyrir norðan. Á laugardag og sunnudag (hvítasunnudagur): Fremur hæg norðlæg átt. Dálítil rigning eða slydda af og til á norðanverðu landinu, en skýjað með köflum og skúrir syðra. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Óveður gengur yfir landið Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fleiri fréttir Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Sjá meira