„Stóra og fallega frumvarpið“ enn í limbó á þinginu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. júlí 2025 07:21 Mike Johnson, forseti neðri deildar þingsins, hefur haft í mörgu að snúast í nótt. Getty/Andrew Harnik Atkvæðagreiðsla um hvort taka eigi „stóra og fallega frumvarp“ Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir í fulltrúadeild bandaríska þingsins hefur nú staðið yfir í nokkrar klukkstundir.
Allir þingmenn Demókrataflokksins og fimm þingmenn Repúblikanaflokksins hafa greitt atkvæði gegn tillögunni og þá eiga átta Repúblikanar eftir að greiða atkvæði. Atkvæði Repúblikanana fimm duga til þess að fella tillöguna en Mike Johnson, forseti neðri deildarinnar, segist sannfærður um að þeir skipti um skoðun og að tillagan nái í gegn. Frumvarpið verði tekið til umræðu í framhaldinu og samþykkt fyrir 4. júlí, eins og Trump hafði fyrirskipað. Frumvarpið er afar umfangsmikið en fjallar í aðalatriðum um ráðstafanir í ríkisfjármálum. Þar verður skorið verulega niður til velferðarmála en efasemdamenn innan Repúblikanaflokksins segja ekki gengið nógu langt og mótmæla því harðlega að frumvarpið muni hafa neikvæð áhrif á skuldastöðu ríkisins. New York Times hefur eftir Johnson að menn séu enn að kynna sér þær breytingar sem gerðar voru á frumvarpinu í öldungadeildinni en hann hafi fulla trú á því að tillagan um að taka það á dagskrá verði samþykkt á næstu klukkustundum. Trump hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum í nótt og er greinilega síður en svo ánægður með þróun mála.
Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn eitt skipið sekkur á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sjá meira