Kjóstu flottasta garð ársins 2025! Flottasti garður landsins 2025 17. júlí 2025 10:44 Undanfarna viku hafa hlustendur Bylgjunnar og lesendur Vísis sent inn tilnefningar um flottasta garð landsins 2025 en fresturinn rann út á miðnætti síðasta sunnudag. Dómnefnd Bylgjunnar, Vísis og Garðheima hefur staðið í ströngu undanfarna daga og skoðað fjölda fallegra mynda af litríkum og fallega skipulögðum görðum víða um land.
Neðar í greininni er hægt að skoða myndir af þeim fimm görðum sem dómnefnd valdi og kosningin er í lok greinarinnar. Sigurvegarinn í leiknum hlýtur í verðlaun 100.000 kr. inneign hjá Garðheimum. „100.000 kr. inneign í Garðheimum býður upp á fjölmarga valmöguleika,“ segir Reynir Haraldsson, markaðsfulltrúi hjá Garðheimum. „Nú er t.d. frábær tími til að fríska upp á beðin, skipta gömlu blómunum út fyrir ný og mögulega ná sér í nýjan útipott fyrir restina af sumrinu. Tré, runnar og fjölæringar sem þú tímir vanalega ekki að fjárfesta í eru einnig frábær hugmynd til að nota inneignina í.“ Einnig bendir hann á haustlyng til þess að garðurinn fari sem fallegastur inn í veturinn. „Það er svo líka hægt að fara aðrar leiðir í þessu. Stihl búðin okkar er með hágæða sláttuvélar, orf, klippur, blásara og margt fleira sem nýtist vel í garðvinnu. Svo er einnig hugmynd að uppfæra grillið á pallinum eða hreinlega bæta við, en við erum með frábært úrval af hágæða kolagrillum frá Bastard og Grillguru og pizzaofna frá LeFeu sem hafa fengið frábærar viðtökur.” Kosningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 24. júlí og verða úrslit tilkynnt degi síðar, föstudaginn 25. júlí. Taktu þátt og kjóstu flottasta garðinn 2025! ** Kosningu er lokið. Takk fyrir að taka þátt! ** Dröfn Jónsdóttir og Stefán Pétursson búa í Dverghólum 17 á Selfossi. Hér eru myndir frá garðinum þeirra. Íris Böðvarsdóttir og Karl Hreggviðsson búa á Óseyri við Eyrarbakka. Anna Guðmundsdóttir og Andrés Andrésson búa í Einihlíð 8 í Hafnarfirði. Sólveig Ósk Hallgrimsdottir og Gísli Þór Guðmundsson við Austurveg 29 á Selfossi. Jórunn Magnúsdóttir og Björn Davíð Kristjánsson búa við Barðavog 13 í Reykjavík. Kjóstu hér um flottasta garðinn 2025:
Flottasti garður landsins 2025 Garðyrkja Hús og heimili Blóm Bylgjan Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira