Íslensk hátíska úr fiskileðri slær í gegn í Vogue Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. júlí 2025 11:33 Sigrún Björk Ólafsdóttir hönnuður vinnur með leðurmerkinu Nönnu Lín og hafa flíkurnar vakið mikla athygli. Facebook Frakki úr íslensku fiskileðri fyrirtækisins Nanna Lín birtist í annað sinn í breska tískutímaritinu Vogue nú á dögunum. Er um að ræða samstarfsverkefni á milli Sigrúnar Bjarkar Ólafsdóttir og Nanna Lín teymisins sem virðist vekja athygli víða um tískuheiminn.
Frakkinn er hannaður og saumaður af Sigrúnu og var upprunalega frumsýndur á viðburðinum House of iKons í London í september síðastliðnum sem hluti af línunni RAW. Sigrún vinnur mikið með tískuljósmyndaranum Mariana MA sem tók þessar glæsilegu myndir sem birtust í tímaritinu. Neðst í hægra horni má sjá umfjöllun Vogue um Sigrúnu og Nanna Lín.Aðsend María Dís Ólafsdóttir og Leonard Jóhannsson stofnuðu Nanna Lín árið 2022 með það markmið að bjóða framleiðendum upp á slitsterkt og umhverfisvænt leður úr roði í metravís. View this post on Instagram A post shared by Nanna Lín (@nanna_lin_leather) Í fréttatilkynningu segir: „Með því að vinna með stærri fleti af leðri má auka hagkvæmni í framleiðslu og minnka sóun sem fylgir afklippum. Einnig getur Nanna Lín leyst plastblandaðan textíl af hólmi og spornað gegn hraðtísku. Nanna Lín leðrið er frábrugðið öðru fiskileðri á þann hátt að það er endurmótað yfir í breiður áður en það er sútað, en þannig fæst fiskileður í metravís. Leðrið er úr laxaroði úr Landeldi í Öxarfirði. Roðið er fengið í gegnum veitingastaðin Rub23 og frá Hnýfil ehf á Akureyri. Því er um auka afurð að ræða. Leðrið er sútað með trjáberki, en slík sútun var algeng áður en ónáttúruleg efni komu til sögunnar. Framleiðsla á Nanna Lín er ekki hafin en vöruþróun miðar vel áfram.“ View this post on Instagram A post shared by Nanna Lín (@nanna_lin_leather) Sigrún Björk Ólafsdóttir hannar tískufatnað og búninga undir nafninu Sigrún Design og RockNRunes. „Sigrún hannar bæði hefðbundin nútíma föt en skemmtilegast finnst henni að gefa sköpunarkraftinum lausan tauminn og hanna óhefðbundin föt og fær innblástur úr goðafræði, víkingaheimum og þjóðsögum. Fleiri flíkur og fylgihlutir eru í bígerð hjá Sigrúnu sem fær þá skemmtilegu áskorun að vinna með leðurbútana, sem eru oft nokkuð ólíkir. En Nanna Lín teymið er stöðugt að þróa leðurgerðina og ýmsar útfærslur hafa orðið til. Það er því alveg ljóst að þið munið þá að sjá meira frá Sigrúnu og Nanna Lín á næstunni.“
Íslendingar erlendis Tíska og hönnun Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Arnór Sig kominn á fast Lífið Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Fleiri fréttir Stundum gott að fara öruggu leiðina Sturluð skvísulæti í stórafmæli Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Sjá meira