Ætlar fyrir Mannréttindadómstólinn og segir fréttaflutning villandi Árni Sæberg skrifar 24. júlí 2025 15:58 Listamaðurinn Odee ásamt flennistórri veggmynd þar sem beðist er afsökunar í leturgerð Samherja. Vísir/Vilhelm Listamaðurinn Odee Friðriksson er hvergi af baki dottinn í baráttu sinni við Samherja vegna afsökunarbeiðni og vefsíðu sem hann setti upp í nafni Samherja. Hann ætlar með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu eftir að áfrýjunardómstóll hafnaði áfrýjunarbeiðni hans. Þá segir hann fréttaflutning Ríkisútvarpsins af málinu villandi.
Afsökunarbeiðnin og vefsíða sem Odee smíðaði og lét líta út fyrir að vera á vegum Samherja var hluti af útskriftarverkefni hans við Háskólans í Björgvin í Noregi. Odee hefur ítrekað reynt að blekkja fjölmiðla með fölskum fréttatilkynningum sem hann hefur sent út, nú síðast í nafni bandarísku kaffihúsakeðjunnar Starbucks. Samherji óskaði eftir því að Odee tæki vefsíðuna niður, afhenti fyrirtækinu lén hennar og gerði grein fyrir því að síðan hefði verið fölsuð. Því neitaði hann. Í kjölfarið stefndi Samherji Odee fyrir breskum dómstól en vefsíðan var hýst í Bretlandi. Í frétt Reuters um málið sagði að dómari í því hefði ákveðið að fallast á allar kröfur Samherja án þess að eiginleg réttarhöld færu fram í málinu. Hann hefði talið að málsástæður Odees væru harla ólíklegar til þess að leiða til sýknu af kröfum félagsins. Því hefði hann fallist á kröfur Samherja um að setja lögbann á vefsíðuna. Þá hefði hann sagt að hann myndi gera Odee að greiða Samherja „lága fjárhæð“ sem ætti að dekka tjón félagsins vegna málsins. Afþakkaði boð Samherja Um það bil mánuði síðar hafnaði áfrýjunardómstóll í Lundúnum áfrýjunarbeiðni Odees og Samherji bauðst til þess að fella niður allar kröfur um málskostnað léti hann staðar numið og sætti sig við niðurstöðuna. Odee sagði í samtali við Vísi daginn eftir að hann hefði afþakkað boð Samherja og fengið 35 milljóna króna málskostnaðarreikning í andlitið. „Þvingandi útspil sem sem er í hrópandi mótsögn við fyrri tilboð Samherja. Þetta virðist ekki vera neitt annað en tilraun til þess að ógna mér og þagga niður í mér vegna gagnrýni minnar í þeirra garð vegna Namibíumálsins [e. Fishrot scandal].“ Þá sagði hann að við meðferð áfrýjunarbeiðninnar fyrir dóminum hefði Samherji fallið frá kröfu sinni sem sneri að brotum á hugverkarétti félagsins og dómurinn hefði dæmt félagið til að bera málskostnað hvað þann hluta málsins varðar. Hann myndi áfrýja málinu og halda áfram baráttu sinni fyrir réttlæti. Engin haldbær rök til að endurskoða niðurstöðuna Í fyrradag greindi Ríkisútvarpið svo frá því að æðsti dómstóll Bretlandseyja [e. High Court of Justice, í Lundúnum] hefði staðfest niðurstöðu lægri dómstiga um sekt Odees. Í forsendum dómsins hafi ákvörðun lægra dóms verið sögð hafa verið rétt og að engin haldbær rök hefðu komið fram til að endurskoða hana. Þetta segir Odee vera villandi fréttaflutning. Tvö æðri dómstig „Rangt var farið með í fréttafluttningi Rúv sem Mbl hafði eftir að ég hefði verið fundinn sekur þann 22. Júlí. Hið rétta er að árýjunarbeiðni minni var hafnað. Ekki er heldur um að ræða „æðsta dómstól Bretlands“. Tvö önnur dómsstig eru ofar Hæstarétti. Það er Court of Appeals og The Supreme Court of the United Kingdom. Málið hefur eingöngu verið rekið fyrir Hæstarétti Lundúna frá upphafi þess, maí 2023. Fréttafluttningurinn er villandi. Einnig var ekki haft samband við mig til þess að ég gæti komið sjónarmiðum mínum á framfæri. Ég hef sent Rúv ósk um leiðréttingu sem var ekki svarað,“ segir í yfirlýsingu Odees, sem hann sendi Vísi í dag. Þá segir að málinu sé ekki lokið af hans hálfu, enda hyggist hann áfrýja því til Mannréttindadómstóls Evrópu. Undirbúningur fyrir það mál sé þegar hafinn. Auk þess sé hann með gagnkröfu gegn Samherja, sem hafi verið færð frá Hæstarétti til IPEC Intellectual Property Enterprise Court. „Listamenn eigi rétt á að tjá sig opinberlega um málefni líðandi stundar. We’re Sorry beindi sviðsljósi á stærsta spillingarmál Íslands og Namibíu. Barátta fyrir tjáningarfrelsi, samfélagslegri ábyrgð og réttlæti heldur áfram.“
Samherjaskjölin Bretland Höfundar- og hugverkaréttur Íslendingar erlendis Sjávarútvegur Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira