Viðskipti erlent

Gengi Novo Nordisk steypist niður

Agnar Már Másson skrifar
Ozempic er eitt vinsælasta lyf í heimi um þessar mundir, einkum í Bandaríkjunum.
Ozempic er eitt vinsælasta lyf í heimi um þessar mundir, einkum í Bandaríkjunum. EPA-EFE/Ida Marie Odgaard

Hlutabréfaverð í danska lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk hefur steypst um hátt í tuttugu prósent um leið og væntingar af lyfjasölu í Bandaríkjunum hafa dregist saman. Í miðju blóðbaðinu tilkynnti fyrirtækið að það hafi valið sér nýjan forstjóra.

Novo Nordisk framleiðir þyngdarstjórnunarlyfin Wegovy og Ozempic. Lyfin eru afar vinsæl um víða veröld en stærsti markaður fyrir þeim er í Bandaríkjunum.

Í dag uppfærði fyrirtækið spá sína fyrir 2025 þar sem gert er ráð fyrir allt að fjórtán prósenta söluaukningu og allt að sextánprósena aukningu af rekstrarniðurstöðu fyrirtækisins. Þetta eru aftur á móti smærri tölur en fyrri spár höfðu gert ráð fyrir.

Frá því klukkan 11.09 hafa hlutabréf Novo Nordic, sem er verðmætasta fyrirtæki Danmerkur, fallið um allt að 20 prósent. Danska kauphallarvísitalan hefur sömuleiðis lækkað um tvö prósent. Danski miðillinn Ekstra bladet lýsir ástandinu sem „blóðbaði“.

Og klukkan 11.36 tilkynnti Novo Nordisk að það hefði tilnefnt nýjan forstjóra og skipað hinn bandaríska Maziar Mike Doustdar sem nýjan forstjóra fyrirtækisins.

Mike Doustdar hefur unnið hjá fyrirtækinu í þrjátíu ár og mun samkvæmt tilkynningunni taka við sem forstjóri þann 7. ágúst af Lars Fruergaard Jørgensen, sem var látinn taka pokann sinn í maí.


Tengdar fréttir

Novo Nordisk orðið verðmætasta fyrirtæki Evrópu

Danska lyfjafyrirtækið Novo Nordisk hefur hagnast um rúmlega tólf hundruð milljarða íslenskra króna það sem af er ári. Þessi methagnaður einn og sér er ástæða þess að hagvöxtur í Danmörku er jákvæður í stað þess að vera neikvæður, en fyrirtækið er nú talið verðmætasta fyrirtæki Evrópu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×