Bandarískir trúboðar herja á einangraða ættbálka með drónum og sólarknúnum afspilunartækjum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 29. júlí 2025 11:47 Ungur Kórúbóadrengur með bróður sinn í fanginu og gæluapa um hálsinn. FUNAI Bandarískir trúboðar smygla sólarorkuknúnum hljóðafspilunartækjum inn á heimkynni einangraðra frumstæðra ættbálka djúpt í viðjum Amasonfrumskógarins. Þetta er nýjasta útspil þeirra en þeir hafa í fleiri áratugi komist í kast við brasilísk embætti sem vernda ættbálka sem eru ekki í samskiptum við umheiminn.
Þetta kemur fram í nýrri umfjöllun sem breski miðillinn Guardian og hinn brasilíski O Globo unnu en í Amasonfrumskóginum dvelja flestir ættbálkar sem eru án samskipta við umheiminn eða svokallaðir uncontacted peoples. Þessir ættbálkar hafa varðveitt sína hefðbundnu lifnaðarhætti og eru að mestu leyti algjörlega lausir við afskipti nútímasamfélags og stjórnvalda. Viðkvæm ónæmiskerfi illa í stakk búinn fyrir fagnaðarerindið Ættbálkar þessir eru miseinangraðir. Sumir þeirra eiga í einhverjum samskiptum og viðskiptum við brasilískt samfélag og sækja til dæmis heilbrigðisþjónustu eða nauðsynjavörur í þéttbýli. Aðrir hafa hins vegar litla sem enga þekkingu á umheiminum og forðast aðkomumenn eins og hægt er. Víða um vatnasvið Amasonfljóts hafa einangraðir ættbálkar orðið fyrir barðinu á ósvífnum mönnum í gróðaleit en heimkynni þeirra eru eftirsótt undir skógarhögg, landbúnað og námuvinnslu. Undir frumbyggjamálastofnun brasilískra stjórnvalda starfar sérstök stofnun sem annast málefni einangraðra ættbálka og verndar hagsmuni þeirra. Þessara hagsmuna á meðal er varðveisla menningu þeirra, máls og trúar sem innlendir og bandarískir trúboðar herja á í sífellt auknum mæli. Svo ekki sé minnst á hættuna sem að ættbálkunum steðjar komist þeir í návígi við trúboðana sem bera með sér sjúkdóma sem ónæmiskerfi meðlima ættbálkanna sem hafa verið einangraðir sumir hverjir í þúsundir ára eiga ekki roð í. Sólarknúin afspilunartæki með heilagri ritningu Djúpt í Javari-dal Amasonfrumskógarins býr Kórúbófólkið sem er enn þann dag í dag að mestu leyti einangraður þó ýmsir þeirra séu í takmörkuðum samskiptum við landnema í brasilísku byggðinni Tabatinga við ármót Amasonfljótsins og Javarifljótsins. Skömmu fyrir upphaf heimsfaraldursins var fjallað um að hópur af bandarískum trúboðum hefði verið staðinn að því að skipuleggja trúboðsferð til einangraðra ættbálka Javari-dalsins. Þremur mönnum, þeim Thomas Andrew Tonkin, Josiah McIntyre og Wilson de Benjamin Kannenberg, var meinaður aðgangur að svæðinu með dómsúrskurði en þeir eru tengdir samtökum sem heita Missão Novas Tribos do Brasil eða Trúboð nýrra ættbálka Brasilíu á íslensku. Tækið umrædda sem fannst í Kórúbóaþorpi.Guardian Nú hefur það komið á daginn að trúboðarnir eru snúnir aftur til Javari-dals með ný brögð uppi í erminni, tæki sem þeir földu. Samkvæmt umfjöllun Guardian fannst tækið fyrst í afskekktu þorpi Kórúbóa nýverið. Það er gult og svart og á stærð við litla talstöð. Á því er látlaust viðmót, hátalari og hnappar sem, ef ýtt er á þá, spila upplestra úr heilagri ritningu og ræður eftir bandarískan baptista. Eftir því sem miðillinn kemst að eru minnst sjö slík tæki í umferð en þau eru knúin sólarorku enda engir rafmagnsinnviðir í frumstæðum þorpum ættbálkanna. „Sjáum hvað Páll segir er hann veltir fyrir sér eigin lífi í þriðja kafla Filippíbréfsins versi fjögur: „Ef einhver annar þykist geta treyst á ytri merki gæti ég það fremur.““ ómar úr tækinu á spænsku og portúgölsku. Tækið er framleitt af bandarískum samtökum baptista sem heita In Touch Ministries og eru rekin úr Atlantaborg í Georgíuríki. Samtökin þvertaka fyrir það að hafa nokkra aðkomu að því að tækið komst í hendur Kórúbómanna, enda er þeim meinaður aðgangur að heimkynnum þeirra, en framkvæmdastjóri þeirra segir það ekki útilokað að „önnur samtök“ trúboða hafi smyglað því þangað inn. Drónar meðal verkfæra trúboða Kórúbóarnir eru gríðarlega eftirsóttir meðal bandarískra trúboðasamtaka enda áttu þeir ekki í samskiptum við umheiminn fyrr en árið 1996. Þeir eru því kjörið viðfangsefni þeirra sem vilja breiða út fagnaðarerindið enda ræðir þar um sálir sem hafa hingað til þessa haft enga vitneskju af Jesú Kristi. Við vinnslu umfjöllunarinnar var einnig rætt við Cardovan da Silva Soeiro liðþjálfa. Hann starfar á stöð brasilískra stjórnvalda við heimkynni Kórúbóa og segir brasilísku lögregluna meðvitaða um ágang trúboða. Þeir hafi meðal annars orðið varir við umferð flygilda í og við stöðina. „Við vitum ekki hvort þeir tilheyra trúboðum, fíkniefnasmyglurum, veiðimönnum eða námuverkamönnum sem fylgjast með stöðinni til að sjá hvort þeir komist hérna í gegn. Þegar mér barst skipun að ofan um að skjóta þá niður, mundaði ég riffilinn en dróninn komst undan á miklum hraða. Þeir virka mjög þróaðir,“ segir hann.
Brasilía Trúmál Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Sjá meira