Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Magnús Jochum Pálsson skrifar 2. ágúst 2025 11:41 Tom Holland, Mark Ruffalo, Jon Bernthal og Michael Mando munu allir leika í næstu mynd um Köngulóarmannin. Fjórða myndin um Köngulóarmanninn með Tom Holland í aðalhlutverki er farin í framleiðslu og er leikhópurinn stjörnum prýddur. Svo virðist sem Hulk, Punisher og Scorpion muni allir koma við sögu.
Spider-Man: Brand New Day heldur áfram sögu Peter Parker þar sem frá var horfið í Spider-Man: No Way Home (2021) þar sem kappinn krukkaði of mikið í göldrum Herra undarlegs. Myndin verður frumsýnd í júlí næsta sumar og hófust tökur fyrir myndina nýlega í Glasgow-borg, sem búið er að breyta í New York-líki með bandarískum fánum, lögreglubílum og skólarútum. Í gær birti Sony kitlu á X (Twitter) af nýjum búningi Köngulóarmannsins. Something brand new is coming… #SpiderManDay pic.twitter.com/uhdUkqpHcS— Spider-Man Movie (@SpiderManMovie) August 1, 2025 Leikstjóri myndarinnar verður Destin Daniel Cretton, sem hefur áður leikstýrt Just Mercy (2019) og Marvel-myndinni Shang-Chi and the Legend of the Ten Rings (2021). Auk Holland snúa Zendaya og Jacob Batalon aftur sem vinir Parker en þar að auki hafa nokkur stór nöfn verið tilkynnt. Græna tröllið, sporðdreki og refsari Nýjustu fréttirnar eru þær að Mark Ruffalo muni snúa aftur sem Bruce Banner/Hulk í myndinni, fjórtán árum eftir að hann gekk til liðs við Marvel í Hefnendunum. Ruffalo hefur leikið Banner í átta Marvel-myndum og kom síðast fyrir í sjónvarpsþáttunum She-Hulk: Attorney at Law og What if...?. Þá er þegar búið að staðfesta að Michael Mando, sem er þekktastur fyrir leik sinn í Better Call Saul og Breaking Bad, muni snúa aftur sem Mac Gargan/Sporðdrekinn sem hann lék í fyrstu Tom Holland-myndinni, Spider-Man: Homecoming (2017). Enn annar sem hefur svo verið staðfestur er Jon Bernthal sem andhetjan Punisher sem birtist í fyrsta sinn í kvikmyndaheimi Marvel og í fyrsta sinn á skjánum síðan 2008 þegar Ray Stevenson lék karakterinn í Punisher: War Zone. Söguþráður myndarinnar liggur ekki enn fyrir en því hefur verið spáð að Köngulóarmaðurinn muni slást við bæði Hulk og Punisher áður en raunverulegt illmennið kemur í ljós. En það eru bara spekúlasjónir. Hulk, Scorpion og Punisher.
Bíó og sjónvarp Hollywood Írland Mest lesið Björk beinir skilaboðum til stjórnar RÚV Lífið Vatn og brauð íslenskra fanga: Hvað elda menn í íslenskum fangelsum? Menning Ljósavinir fögnuðu í Sjálandi Lífið „RÚV plís ekki vera gungur og aumingjar“ Lífið Gefur út bók um reynsluna af því að vera útilokuð Menning „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Bíó og sjónvarp Hafði leitað árangurslaust að blóðföður sínum í áratugi Lífið Stjórnmálamenn stigu trylltan dans í kjaftfullum Austurbæ Lífið Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Lífið samstarf Mortal Kombat-stjarna látin Lífið Fleiri fréttir „Það er hægt að búa til alvöru hasarmyndir á Íslandi“ Yrsa, Hannes og Björg í eina sæng með Thule Sagði „frost í greininni“ og krafði Loga um breytingar Þrýstingur Trump dugði til að fá Rush Hour 4 í gegn Eru þetta bestu gamanmyndir sögunnar? Udo Kier er látinn Helga Margrét tekur við af Króla Framleiða keflvískan krimma sem gerist á hápunkti kalda stríðsins Æstur aðdáandi óð í Grande Hafnar ásökunum um dónamyndir og segir þveröfugt farið Sópa til sín verðlaunum um heim allan Íslenskur Taskmaster kemur í vor Hannes í víking með gamansama glæpamynd Snýr aftur í leiklistina eftir sjö ára fjarveru Urðað yfir nýja þætti Kim: Núll stjörnu glæpur gegn sjónvarpi Sjá meira