„Óskar seldi mér bara hugmyndina sína“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. ágúst 2025 12:30 Galdur Guðmundsson valdi KR fram yfir önnur áhugasöm félög. vísir / einar Knattspyrnumaðurinn Galdur Guðmundsson segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara KR, hafa sannfært hann um að skrifa undir samning við Vesturbæjarliðið. Galdur er snúinn aftur hingað heim til að spila meira en stefnir á að komast aftur út í atvinnumennsku.
Þessi nítján ára leikmaður skrifaði á dögunum undir þriggja og hálfs árs samning við Vesturbæjarliðið. Hann kemur frá Horsens í Danmörku en þar á undan var hann á mála hjá FCK í Kaupmannahöfn. „Ég er fyrst og fremst bara sáttur, ánægður að vera mættur aftur heim og það var tekið vel á móti mér. Af hverju valdi ég KR? Vegna þess að KR spilar skemmtilegan fótbolta og ég þekki Óskar vel, hann þjálfaði mig áður í Breiðablik. Spennandi lið sem spilar skemmtilegan fótbolta, það var helst það“ segir Galdur sem var eftirsóttur af fleiri félögum, þeirra á meðal uppeldisfélaginu Breiðabliki. Galdur er uppalinn hjá Breiðabliki og steig sín fyrsta skref þar áður en hann fór út til Danmerkur. vísir / einar „Það var mikilvægt að velja rétta liðið en Óskar seldi mér bara hugmyndina sína, hann seldi mér sitt og þetta er líka bara spennandi lið sem er í uppbyggingu. Þannig að mér fannst KR vera rétta skrefið fyrir mig“ segir Galdur en hann stefnir á að fara aftur út í atvinnumennsku eins fljótt og hægt er. „Klárlega. Það var líka inn í myndinni, að ef ég kæmi í KR myndi ég fá að spila og um leið ég er farinn að spila og spila vel, þá er alltaf góður gluggi til að fara aftur út.“ Gaman að skora og getur fagnað þriðja sigrinum í röð í kvöld Kantmaðurinn kom fyrst við sögu með KR þegar hann kom af bekknum í sigri gegn Aftureldingu. Í síðustu umferð gerði hann svo eina mark leiksins gegn Fram og var hetja KR í öðrum sigurleik liðsins í röð. „Það var gaman að skora og gott að markið taldi, þrjú stig og að skora, það gerist varla betra.“ KR er sem stendur í 9.sæti deildarinnar en var ekki fyrir svo löngu í fallsæti. Í kvöld tekur KR getur unnið þriðja leikinn í röð, þegar Stjarnan heimsækir liðið á nýja gervigrasið á Meistaravöllum. „Það er lítið af því úti en þetta er fljótari fótbolti og ég kann að meta gervigras“ segir Galdur um nýja gervigrasið.
Besta deild karla KR Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira