Umframeftirspurn eftir skuldabréfum Play Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. ágúst 2025 17:31 Einar Örn Ólafsson forstjóri Play. Vísir/Einar Flugfélagið Fly Play hf. hefur lokið við útgáfu breytanlegs skuldabréfs til tveggja ára en umframeftirspurn var eftir bréfunum. Fjórar vélar verða starfræktar frá Íslandi í vetur, undir maltnesku flugrekstrarleyfi.
Umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum en upphafleg áskriftarloforð voru tuttugu milljónir Bandaríkjadollara, eða rétt rúmir 2,4 milljarðar króna. Fjárhæðin við lok útgáfu skuldabréfanna nam hins vegar 23 milljónum Bandaríkjadollara, eða rúmum 2,8 milljörðum króna. Öllum fyrirvörum útboðsins hefur verið aflétt og fjármögnun félagsins lokið. „Þessi niðurstaða staðfestir þá tiltrú sem fjárfestar bera til Play og framtíðaráforma félagsins. Fjármögnunin styrkir rekstrargrundvöll félagsins verulega og gerir Play kleift að einbeita sér að arðbærum verkefnum og áframhaldandi vexti,“ stendur í fréttatilkynningu Play. Í vetur hyggst Play starfrækja fjórar vélar frá Íslandi, með áhafnir frá Íslandi á íslenskum kjarasamningum samkvæmt tilkynningunni. Flogið verður til sólarlanda í Suður-Evrópu auk nokkurra áfangastaða í Norður-Evrópu, þar á meðal Kaupmannahafnar og Liverpool. Hinar sex vélarnar verða nýttar í arðbær leiguverkefni, sem ætti að tryggja félaginu stöðugar tekjur allt árið um kring. Líkt og áður hefur komið fram verður flogið undir maltnesku flugrekstrarleyfi og íslenska leyfinu skilað. Að auki verður flugi til Norður-Ameríku hætt nú í lok október og áfangastöðum í Norður-Evrópu fækkað. „Við erum afar ánægð með hversu sterk viðbrögð fjárfesta hafa verið. Þetta er skýr staðfesting á því að markaðurinn hefur trú á Play, framtíðarsýn okkar og þeirri stefnu sem við höfum markað. Með þessum áfanga stöndum við betur undirbúin en nokkru sinni fyrr til að dafna sem öflugt alþjóðlegt flugfélag með sterkar íslenskar rætur. Við stefnum að miklum viðsnúningi í rekstri og hlökkum til að kynna nýja og spennandi áfangastaði fyrir Íslendingum á næstunni,“ er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Play, í tilkynningunni.
Play Bandaríkin Fréttir af flugi Mest lesið „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira