Viðskipti innlent

„Mér fannst þetta bara gott hjá Ingu“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þorvaldur Gissurarson er forstjóri og eigandi ÞG Verks.
Þorvaldur Gissurarson er forstjóri og eigandi ÞG Verks. Vísir/Lýður Valberg

Verktaki segir Reykjavíkurborg verða að bregðast betur við slæmri stöðu á húsnæðismarkaði. Hann segir sig og kollega sína í verktakabransanum einnig geta litið í eigin barm.

Í kvöldfréttum Sýnar í gær skoraði húsnæðismálaráðherra á verktaka að lækka verð á þeim tilbúnu íbúðum sem eru á markaði en seljast ekki. Í skýrslu HMS segir að tæpar nítján hundruð nýjar íbúðir hafi verið óseldar í júní síðastliðnum, tæplega fimmtíu prósent fleiri en á sama tíma í fyrra.

Verktakar geti litið í eigin barm

Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG Verks, eins stærsta verktakafyrirtæki landsins, segist ánægður með orð Ingu.

„Mér fannst þetta bara gott hjá Ingu og get alveg tekið undir það að íbúðaverð hefur hækkað of mikið og of hratt á liðnum árum. Verktakarnir geta örugglega tekið eitthvað af þessu til sín og það er sjálfsagt mál að skoða það, en það eru mun stærri undirliggjandi þættir sem eru valdur af íbúðaverðshækkunum,“ segir Þorvaldur. 

Borgin auki öll gjöld

Þorvaldur segir stærsta vandamálið vera langvarandi lóðaskortur á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi hátt vaxtastig gríðarlega mikil áhrif.

„Það er síðan ekki hægt að horfa fram hjá því að það skýtur ofboðslega skökku við í þessari umræðu að á sama tíma sé Reykjavíkurborg að hækka gatnagerðargjöld um allt að níutíu prósent. Sveitarfélögin hafa öll aukið sína gjaldtöku, hvort sem það er í formi gatnagerðargjalda, innviðagjalda, byggingaréttagjalda eða að gjöldin séu nefnd öðru nafni, mun meira og mun hraðar hlutfallslega en hækkun íbúðaverðs hefur verið á liðnum árum,“ segir Þorvaldur.

Tryggja þarf að það verði ekki skortur

Hann fagnar einnig að Inga segist ætla að létta á regluverkinu í kringum íbúðauppbyggingu og auðvelda fólki að komast í gegnum greiðslumat.

„Það skýtur mjög skökku við að fólk sem greiðir kannski 400 þúsund krónur í húsaleigu í dag fær ekki greiðslumat upp á 350 þúsund krónur. Þessu þarf öllu saman að breyta. En þegar fólki verður gert kleift að kaupa íbúð þurfa að vera íbúðir til staðar á markaðinum eða í byggingu. Þess vegna þarf að taka höndum saman og tryggja það að það verði ekki viðvarandi skortur sem leiðir mögulega af sér aftur hækkun íbúðaverðs,“ segir Þorvaldur.


Tengdar fréttir

Vinnur á fjórum stöðum en eigin íbúð fjar­lægur draumur

Kona sem vinnur á fjórum stöðum en kemst ekki í gegnum greiðslumat vegna íbúðarkaupa óttast að vera föst á leigumarkaði næstu árin. Fjármálaráðgjafar segja hana þurfa að sækja aðstoð frá öðrum vilji hún eignast íbúð. Svo sé einfaldlega dýrara að vera kona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×