Róbert sá þriðji til að aðstoða Heiðu á rúmu hálfu ári Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 2. september 2025 08:27 Róbert starfaði meðal annars sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna á tímum kórónuveirufaraldursins. Vísir/Vilhelm Róbert Marshall, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar, hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra. Róbert hefur komið víða við á sínum starfsferli og hefur meðal annars verið aðstoðarmaður ríkisstjórnar, fjallaleiðsögumaður og starfað við fjölmiðla. Róbert er þriðji aðstoðarmaður Heiðu Bjargar síðan hún tók við embætti borgarstjóra í febrúar. Róbert hefur störf í dag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en í síðustu viku hætti Ágúst Ólafur Ágústsson, annar fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, sem aðstoðarmaður borgarstjóra þegar hann tók við starfi aðstoðarmanns mennta- og barnamálaráðherra. Sjá einnig: Hættir hjá borgarstjóra og aðstoðar nú ráðherra „Róbert var upplýsingafulltrúi rikisstjórnarinnar meginhluta áranna 2020 og 2021 á meðan Covid 19 gekk yfir. Hann starfaði við fjölmiðla um árabil og var aðstoðarmaður samgönguráðherra áður en hann settist á þing árið 2009. Róbert er fyrrverandi formaður Blaðamannafélags Íslands og fyrrverandi forstöðumaður fréttasviðs 365. Hann stundaði fiskvinnslu, netagerð og sjómennsku í Vestmannaeyjum og er stúdent frá framhaldsskólanum þar,“ segir í tilkynningu borgarinnar um ráðninguna. „Á þingi gegndi hann meðal annars þingflokksformennsku, formennsku í allsherjarnefnd, formennsku í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og sat í umhverfis- og samgöngunefnd, Þingvallanefnd og Norðurlandaráði.“ Katrín M. Guðjónsdóttir hætti sem aðstoðarmaður borgarstjóra í maí eftir aðeins um tvo mánuði í starfi. Þá gegndi Ágúst Ólafur starfinu í tæpa þrjá mánuði áður en hann söðlaði um og varð aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar, mennta- og barnamálaráðherra, í síðustu viku. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Vistaskipti Borgarstjórn Samfylkingin Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira