Yfir tvö þúsund látnir eftir jarðskjálftann Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 4. september 2025 18:20 Nær öll húsin í Kunar-héraðinu er ónýt eða skemmd. EPA/Aimal Zahir Tala látinna er komin yfir tvö þúsund eftir að gríðarstór skjálfti reið yfir í Afganistan. Erfitt er að koma neyðaraðstoð á svæðið.
Jarðskjálfti að stærðinni sex reið yfir austurhluta Afganistan á sunnudagskvöld. Heilu þorpin féllu vegna skjálftans og fólk lent undir braki húsanna. Flestir hinna látnu voru staddir í Kunar héraði en samkvæmt The Guardian einkennist héraðið af húsum úr timbri og leirsteinum og háum fjöllum. Fyrr í vikunni var greint frá að um fjórtán hundruð manns hefðu látist vegna skjálftans en Hamdullah Fitrat, talsmaður Talíbananna sagði að nú væri tala látinna komin yfir 2200. Þá væru 98 prósent bygginga í héraðinu eyðilagðar eða ónýtar. „Tjöld hafa verið sett upp fyrir fólkið og við höldum áfram að flytja neyðaraðstoð,“ sagði Fitrat. Eyðileggingin sé mikil og erfitt er að koma neyðaraðstoð til þeirra sem þurfa á hjálp að halda. Shamshair Khan, læknir sem starfar í tjaldbúðum Sameinuðu þjóðanna sagði ekki væri nægilega mikið til af lyfjum, mat og vatni. „Þau þurfa meiri hjálp. Þau eru í miklum sársauka,“ segir Khan.
Afganistan Tengdar fréttir Að minnsta kosti fjórtánhundrað látnir í Afganistan Talsmaður Talibana í Afganistan segir að búið sé að staðfesta að fjöldi látinna vegna kröftugs jarðskjálfta sem varð á sunnudaginn sé kominn yfir 1.400. Búist er við því að fjöldinn muni hækka enn frekar en rúmlega þrjú þúsund eru sagðir slasaðir. 2. september 2025 11:14 Talíbanar óska eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins Mörg hundruð hafa látið lífið vegna jarðskjálfta sem reið yfir Afganistan í gær. Björgunarstörf hafa gengið hægt og erfitt hefur reynst að ná til afskekktra byggða sem urðu illa úti. Talíbanastjórnin þar í landi kallar eftir aðstoð og segir litla hjálp að fá frá alþjóðasamfélaginu. 1. september 2025 22:14 Mest lesið Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent „Ég er sá sem getur fellt hann“ Erlent Sakfelldur fyrir morð og refsing þyngd verulega Innlent Moskító mætt á Suðurland Innlent Hafi kallað drenginn „grenjuskjóðu“ Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Bera ábyrgð á þjófnaði gámsins en sleppa með skrekkinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Innlent Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Innlent Fleiri fréttir Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Hafa uppgötvað djöflabýflugu Krefjast tvö þúsund ára fangelsisdóms yfir borgarstjóranum Smallville-leikkona opnar sig í fyrsta sinn um aðkomu sína að kynlífssértrúarsöfnuðinum Grænlenskir góðmálmar og seinagangur bankanna Sprengdi sig í loft upp við dómshús Nýtt spillingarmál skekur Úkraínu Kínverjar menga mest en standa sig samt best Ákváðu að vera opin gagnvart börnunum varðandi veikindin „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Hótar að kæra BBC fyrir einn milljarð dala „Við viljum auðvitað fá fólkið okkar aftur til Úkraínu“ Reynt sé að grafa undan BBC sem þó hafi gert mistök Sjá meira
Að minnsta kosti fjórtánhundrað látnir í Afganistan Talsmaður Talibana í Afganistan segir að búið sé að staðfesta að fjöldi látinna vegna kröftugs jarðskjálfta sem varð á sunnudaginn sé kominn yfir 1.400. Búist er við því að fjöldinn muni hækka enn frekar en rúmlega þrjú þúsund eru sagðir slasaðir. 2. september 2025 11:14
Talíbanar óska eftir aðstoð alþjóðasamfélagsins Mörg hundruð hafa látið lífið vegna jarðskjálfta sem reið yfir Afganistan í gær. Björgunarstörf hafa gengið hægt og erfitt hefur reynst að ná til afskekktra byggða sem urðu illa úti. Talíbanastjórnin þar í landi kallar eftir aðstoð og segir litla hjálp að fá frá alþjóðasamfélaginu. 1. september 2025 22:14