Vilja selja Landsbankann Árni Sæberg skrifar 11. september 2025 11:07 Hildur Sverrisdóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Vísir/Einar Tíu þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram þingmannafrumvarp um sölu ríkisins á Landsbankanum.
Flutningsmenn frumvarpsins eru Sjálfstæðismennirnir Hildur Sverrisdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Jón Gunnarsson, Jón Pétur Zimsen, Vilhjálmur Árnason, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Rósa Guðbjartsdóttir, Ólafur Adolfsson, Guðlaugur Þór Þórðarson. Uppfært: Mistök voru gerð við birtingu frumvarpsins og þar stóð að áætlað söluandvirði Landsbankans yrði um 200 milljarðar króna. Frumvarpið er á leið í endurprentun. Samkvæmt upplýsingum Vísis er reiknað með að söluandvirðið verði um 350 milljarðar króna. Í greinargerð með frumvarpinu segir að tilefni þess og nauðsyn tengist þeirri krefjandi stöðu sem ríkissjóður stendur frammi fyrir. Fram til þessa hafi eignarhlutir ríkisins í Íslandsbanka verið seldir árið 2022, 2023 og 2025. Í frumvarpinu sé lagt til sambærilegt fyrirkomulag og samkvæmt lögum um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka. Frumvarpið kveði á um heimild til sölu á Landsbankanum hf. eingöngu og sem er einskorðuð við tiltölulega einfalda söluaðferð, sem þyki til þess fallin að fylgja meginreglum sem áhersla er lögð á við ráðstöfun ríkiseigna: gagnsæi, hlutlægni, jafnræði og hagkvæmni. Einfalt frumvarp „Efnisatriði frumvarpsins eru einföld. Ráðherra er heimilað, að fenginni heimild Alþingis í fjárlögum, að ráðstafa þeim eignarhlut sem ríkissjóður á í Landsbankanum hf., að fenginni heimild í fjárlögum. Frumvarpið gerir ráð fyrir markaðssettu útboði, einu eða fleirum, sem opið er öllum fjárfestum.“ Við sölumeðferðina skuli gæta að meginreglum um jafnræði, gagnsæi, hagkvæmni og hlutlægni. Sú skylda sé sérstaklega lögð á ráðherra við ráðstöfun samkvæmt söluaðferðinni sem frumvarpið kveður á um að tryggja gagnsæi í tengslum við ráðstöfunina, meðal annars með frumkvæðisbirtingu upplýsinga. Í því sambandi sé rétt að geta þess að allar upplýsingar sem skipta máli varðandi þátttöku í útboðinu eigi að koma fram í lýsingu sem birt er opinberlega. Landsbankinn sé skráð félag á markaði og því þurfi að huga að reglum um innherjaupplýsingar við upplýsingagjöf. Gera ráð fyrir því að ná markmiðum án teljandi ágreinings Gert sé ráð fyrir því að ná megi markmiðum frumvarpsins á nokkuð einfaldan hátt og án teljandi ágreinings. Með því að söluaðferðirnar verði skýrt afmarkaðar í frumvarpinu sé ekki þörf á frekari aðkomu Alþingis umfram umfjöllun um frumvarpið sjálft. Aðhald verði tryggt með ríkri upplýsingaskyldu og þá sé sú skylda lögð á ráðherra að hann feli óháðum aðila að gera úttekt á því hvort meginreglum laganna, verði frumvarpið óbreytt að lögum, hafi verið fylgt við beitingu þeirra. Í samræmi við gagnsæiskröfur frumvarps þessa verði úttektin birt opinberlega. Ef ábendingar um ágalla koma í ljós þá fari það eftir eðli þeirra og alvarleika hvaða viðbrögð úttektin kallar á. Gert sé ráð fyrir að sala eignarhlutar ríkisins fari fram í einni eða fleiri lotum með markaðssettu útboði. Hefðbundin sala með markaðssettu útboði fari fram með opnu útboði til allra fjárfesta, það er bæði almennra fjárfesta og fagfjárfesta. Undirbúningur að slíku útboði taki nokkrar vikur, þar sem útbúin er skráningarlýsing og kynningar haldnar til að meta mögulega eftirspurn. Auk þess þurfi að huga að markaðsaðstæðum varðandi tímasetningu útboða. Gagnsæi muni koma niður á verði Með markaðssettu útboði og þeim fastmótuðu reglum um framkvæmd slíks útboðs, sem lagðar eru til í frumvarpinu, sé áhersla lögð á fyrirsjáanleika og gagnsæi sem gera verði ráð fyrir að geti orðið á kostnað verðs. Fylgni við meginreglu frumvarpsins um hagkvæmni skoðist í því ljósi. Í samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar frá nóvember 2022 vegna útboðs vegna sölu Íslandsbanka hf., sem fram fór í mars sama ár, sé lagt til að viðkomandi fjármálafyrirtæki, í þessu tilviki Landsbankinn hf., komi ekki beint að sölunni. Ríkið eigi nú 98,2 prósent hlut í Landsbankanum.
Landsbankinn Sjálfstæðisflokkurinn Fjármálafyrirtæki Alþingi Mest lesið Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Viðskipti innlent Fleiri færðu lögheimili í ár Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Viðskipti erlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Sjá meira