Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 1. október 2025 12:12 Háskólinn á Akureyri Háskólaráð Háskólans á Akureyri hefur ákveðið að hætta frekari viðræðum um sameiningu við Háskólann á Bifröst og hefur tilkynnt stjórnendum skólans um ákvörðun sína ásamt menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu. Niðurstaðan var samþykkt einróma og gerð að vandlega athuguðu máli.
Þetta kemur fram í sitthvorri tilkynningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst. Í tilkynningu HA segir að viðræður, sem staðið hafa yfir síðan haustið 2023, hafi leitt í ljós að sumar af mikilvægustu forsendum sameiningar stóðust ekki nánari rýni. Skólarnir samþykktu að hefja viðræður um sameiningu í janúar í fyrra. „Ein mikilvægasta forsendan við upphaf vinnunnar var að hægt yrði að sameina rekstrarform skólanna tveggja og að nýr skóli yrði áfram opinber háskóli. Í vinnunni hefur komið í ljós að afar erfitt mun reynast að fella starf Háskólans við Bifröst, sem er sjálfseignarstofnun, að rekstrarformi Háskólans á Akureyri og í raun eru engin fordæmi fyrir slíku,“ segir í tilkynningunni. Segir að sá möguleiki að nýr sameinaður háskóli yrði alfarið opinber stofnun og að starfsfólk hans yrði allt opinber starfsfólk hafi ekki verið mögulegur. Því hafi verið ljóst að sameiningin yrði afar flókin og tímafrek og skapað óvissu um langa hríð. „Önnur grundvallarforsenda sameiningar skólanna var að með sölu eigna Bifrastar og með framlagi frá stjórnvöldum væri hægt að setja á fót öflugan rannsóknarsjóð. Um það atriði ríkir hins vegar mikil óvissa vegna rekstrarformsins og er það niðurstaða Háskólaráðs að nýr háskóli gæti ekki haft stefnumótandi og stýrandi aðkomu að slíkum sjóði.“ Samtalið uppbyggilegt Haft er eftir Áslaugu Ásgeirsdóttur rektori Háskólans á Akureyri að samtalið við Háskólann á Bifröst hafi verið ánægjulegt, uppbyggilegt og unnið af miklum heilindum. Þótt kostir við sameiningu séu vissulega til staðar þá er mikilvægt að vera raunsæ, líta á heildarmyndina og það hlutverk sem okkur er ætlað. Ef við náum ekki að uppfylla það er betur heima setið og það teljum við heillavænlegast fyrir báða skóla á þessum tímapunkti,“ segir Áslaug. „Háskólinn á Akureyri hefur stækkað og eflst verulega á undanförnum árum og stúdentum fjölgað. Það er metnaðarmál okkar allra sem að skólanum stöndum að byggja undir þá þróun. Um leið og skólinn er kjölfesta í samfélaginu okkar þarf hann að vera samanburðar- og samkeppnishæfur við aðra skóla og það er eitt af okkar aðalmarkmiðum.“ Haldi í markmið sín Segir í tilkynningunni að Háskólaráð telji mikilvægt að Háskólinn á Akureyri haldi í forgangi markmið sínu um að efla enn frekar mikilvægi skólans fyrir Akureyri og nærliggjandi svæði. Enda skipti skólinn miklu máli fyrir samkeppnishæfi svæðisins, til að mynda hvað varði atvinnulíf, búsetugæði, menningu og fræðasamfélag. „Þá hafa komið fram kröfur um að auka veg staðnáms við skólann og gera sýnilegra, meðal annars frá fræðasamfélaginu á Akureyri, stúdentum, bæjaryfirvöldum og fleiri mikilvægum hagaðilum í tengslum við umræður um sameiningu. Háskólaráð telur mikilvægt að hlusta á þessar kröfur og breytingar á starfsemi skólans taki mið af þeim.“ Segir að lokum í tilkynningunni að stjórnendur Háskólans á Akureyri og Háskólaráð þakki stjórnendum, starfsfólki og nemendum Háskólans við Bifröst fyrir uppbyggilega og góða vinnu síðustu misseri. Vinnan að sameiningunni hafi skapað tengsl milli skólanna sem von standi til um að geti orðið grunnur að nýju, öflugu samstarfi skólanna tveggja og vináttu til framtíðar. Innri og ytri þrýstingur gert báðum skólum erfitt um vik Í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst segir að stjórnendur skólans hafi kosið að líta á sameiningarviðræður sem tækifæri og mikilvæga viðleitni til að styrkja starfsumhverfi íslenskra háskóla enn frekar og auka samkeppnishæfni þeirra. „Frá því fýsileikaskýrsla um mögulega sameiningu var birt í janúar 2024 hafa viðræðurnar verið undir innri og ytri þrýstingi sem gerði báðum háskólum erfitt um vik. Skilyrði til háskólasameiningar hafa af þeim sökum ekki verið sem ákjósanlegust. Nú er ljóst að háskólaráð HA hefur ákveðið að slíta sameiningarviðræðum.“ Segir að þó sameiningin hafi ekki gengið eftir muni Bifröst áfram leggja sitt af mörkum til einföldunar, eflingar og styrkingar á háskólaumhverfi á Íslandi. Háskólinn sé skilvirkur og lipur háskóli með mikla aðlögunarhæfni sem hafi lagað sig að íslenskum vinnumarkaði síðustu hundrað árin. „Í okkar huga fólust spennandi tækifæri í því að leiða saman krafta þessara tveggja ólíku stofnana t.d. til að skapa nýjan öflugan háskóla, þann næst stærsta á Íslandi, sem væri að fullu samkeppnisfær við sambærilega háskóla í nágrannalöndum okkar. Einnig fólust í því tækifæri til að bæta enn frekar þjónustu og námsframboð fyrir fólk á landinu öllu“ segir Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst. „Þau tækifæri eru þó enn fyrir hendi og Háskólinn á Bifröst er í lykilstöðu til þess að ná fram ofangreindum markmiðum. Skólinn hefur breyst mikið síðustu fimm ár. Fjármál eru til fyrirmyndar og gæðamál sömuleiðis. Undanfarin tvö ár hafa verið einhver þau bestu í rekstri Háskólans á Bifröst og hefur skólinn náð að laða til sín framúrskarandi fræðimenn og fagfólk. Þá sýnir mikill fjöldi nemenda í meistaranámi við skólann að íslenskir háskólanemar velja Bifröst fyrir sitt framhaldsnám því það hentar vel með starfi og fjölskyldu“, segir Margrét. Þakka fyrir samvinnuna Í tilkynningu Bifrastar segir að stjórnendur og kennarar muni halda ótrauð áfram að styrkja námsframboð og veita nemendum skólans hágæða menntun nú sem endranær. Skólinn haldi áfram að leggja áherslu á gróskumikið fræðastarf og öflugt og sveigjanlegt starfs- og námsumhverfi fyrir starfsólk. „Háskólinn á Bifröst verður áfram leiðandi háskóli í uppbyggingu framúrskarandi fjarnáms á Íslandi og þjónar þannig nemendum um land allt og erlendis. Skólinn er hluti af virtu háskólaneti, OpenEU, sem tengir hann við sterkustu fjarnámsháskóla Evrópu. Háskólinn á Bifröst þakkar Háskólanum á Akureyri einlæglega fyrir samvinnuna og samstarfið undanfarin tvö ár og einnig ráðuneyti menningar-, nýsköpunar- og háskóla og hlakkar til áframhaldandi samstarfs og samtals um eflingu háskólanáms á Íslandi.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Háskólar Akureyri Borgarbyggð Skóla- og menntamál Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins Sjá meira