Galopnar sig og segist ætla að breyta hlutunum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 3. október 2025 10:06 Það fór vel á með Eugene Levy og Vilhjálmi Bretaprinsi. Apple Vilhjálmur Bretaprins segist ætla að breyta breska konungsveldinu þegar hann verður konungur. Þetta kemur fram í viðtali sem hann veitti kanadíska leikaranum Eugene Levy í Windsor-kastala fyrir sjónvarpsþáttaröðina The Reluctant Traveller sem er úr smiðju Apple TV+-streymisveitunnar.
Breska ríkisútvarpið fjallar um viðtalið og hefur eftir innanbúðarfólki sínu innan úr höllinni að prinsinn hafi aldrei verið eins opinskár með framtíðarfyrirætlanir sínar. Vilhjálmur verður konungur þegar faðir hans, Karl konungur hinn þriðji, fellur frá. Karl er orðinn 76 ára gamall. Eugene Levy spurði prinsinn hvernig hann sæi fyrir sér tíð sína sem konungur. „Ég held að það sé óhætt að segja það að breytingar séu á dagskránni,“ svaraði prinsinn. „Breytingar til hins betra, og ég fagna þeim, ég nýt þess. Ég óttast þær ekki, það er sá hluti sem ég er spenntur fyrir, hugmyndinni um að geta komið á einhverjum breytingum. Ekki of róttækum, en breytingum sem ég tel að þurfi að verða.“ Þá sýndi prinsinn kanadíska leikaranum Windsor-kastala. Þeir ræddu margt og mikið, prinsinn sagði leikaranum að hann væri aðdáandi American Pie-kvikmyndabálksins þar sem Levy fór með stórt hlutverk. Þá ræddi hann sögu fjölskyldu sinnar. „Ég held að ef þú passar þig ekki þá geti sagan reynst þér fjötur um fót og líkt og akkeri sem heldur aftur af manni og manni getur fundist það yfirþyrmandi, og fundist hún takmarka sig um of. Og ég held það sé mikilvægt að lifa í núinu, hér og nú.“ Þess er getið í umfjöllun breska ríkisútvarpsins að prinsinn hafi tekið fram að hefðir séu mikilvægar. Hann segist hins vegar óhræddur við að spyrja spurninga. „Það koma tímar þar sem maður lítur á hefðir og spyr sig: Henta þær enn tilgangi sínum í dag? Er þetta enn það rétta í stöðunni? Erum við enn að gera það sem við gerum og hafa eins mikil áhrif og við gætum haft?“ spyr prinsinn. „Þannig að ég vil gjarnan efast um hlutina, það er það sem ég er í raun að reyna að segja.“ Leikarinn segist hafa verið hissa á því hvað prinsinn opnaði sig mikið. Ian Gavan/Apple TV+ Ræddi veikindin í fjölskyldunni Þá eru leikarinn og prinsinn á persónulegu nótunum þar sem þeir rölta um ganga kastalans. Talið berst að fjölskyldunni, hvernig það hefur tekið á Vilhjálm að bæði faðir hans og eiginkona séu með krabbamein. „Það sem tengist fjölskyldunni getur verið yfirþyrmandi, alveg töluvert. Þú veist, áhyggjur eða streita í kringum fjölskyldumálin – það er alveg yfirþyrmandi fyrir mig.“ Þeir koma sér næst í þættinum fyrir á knæpu skammt frá Windsor-kastala, Two Brewers pub. Þar lýsir prinsinn því hvernig það var fyrir krakkana hans að takast á við veikindi móður sinnar. „Við reynum að tryggja að við veitum þeim það öryggi og þá vernd sem þau þurfa,“ sagði hann við Levy. „Og við erum mjög opin fjölskylda, þannig að við tölum um það sem veldur okkur áhyggjum og það sem angrar okkur, en maður veit aldrei alveg hvaða afleiddu áhrif það getur haft. Og þess vegna er bara mikilvægt að vera til staðar fyrir hvert annað og hughreysta börnin og fullvissa þau um að allt sé í lagi.“ Prinsinn fór í síder, Eugene Levy í Guinness bjór.Ian Gavan/Apple TV+ Ekki fara í sömu aðstæður og með Harry Vilhjálmur ræðir lítið sem ekkert í viðtalinu um samband sitt við bróður sinn Harry. Harry, eins og lesendur muna eflaust eftir, er fluttur til Bandaríkjanna og hefur reglulega lýst því yfir að eiga í erfiðu sambandi við bróður sinn. Prinsinn minnist þó á bróður sinn við Levy þegar hann er spurður út í það hvernig það var að alast upp í konungsfjölskyldunni. „Ég vona að við förum ekki aftur í sumt af því sem var í gamla daga, það sem ég og Harry ólumst upp við. Og ég mun gera allt sem ég get til að tryggja að við hverfum ekki aftur til þess ástands.“ Þá ræðir BBC við kanadíska leikarann vegna viðtalsins og segist Levy hafa verið hissa á því hvernig prinsinn hafi verið eins og opin bók. Hann segist hafa litið á þetta sem samræður en ekki endilega að þarna væru ný tíðindi, skúbb, á ferðinni. „Hann sagði mér hvað honum gekk til og við gátum spjallað saman. Þetta var algjörlega súrrealískur dagur fyrir mig.“ Undir lok viðtalsins, þegar prinsinn og leikarinn klára drykkina á knæpunni, segist Vilhjálmur vilja skapa heim sem sonur hans geti verið stoltur af. „Þú veist, lífið er líka til þess að reyna á okkur og það getur svo sannarlega verið krefjandi á köflum, og að geta sigrast á því er það sem gerir okkur að því sem við erum,“ segir prinsinn. „Ég er svo stoltur af konunni minni og föður mínum fyrir hvernig þau hafa tekist á við allt síðasta ár. Börnunum mínum hefur líka gengið frábærlega.“
Bretland Kóngafólk Karl III Bretakonungur Mest lesið Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Lífið „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Sjá meira