Segir stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri grafalvarlega Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. október 2025 13:57 Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður hefur áhyggjur af stöðunni á Akureyri og Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að málið sé tekið alvarlega. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stöðuna á sjúkrahúsi Akureyrar grafalvarlega í kjölfar þess að stjórnendur hafi fengið fyrirmæli um að segja upp samningum við sérfræðilækna. Heilbrigðisráðherra segir ekki rétt að þau fyrirmæli hafi komið frá henni, tryggja þurfi þjónustuna með öllum ráðum, málið sé í farvegi hjá forstjóra sjúkrahússins.
Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar bar upp fyrirspurn um málið á þingi í gær. Um sé að ræða þrettán sérgreinalækna í hjarta-, krabbameins-, kvensjúkdóma-, meltingarfæra, -og lyflækningum. Fréttir bárust af því í september að til stæði að segja upp ferilverkasamningunum, heilbrigðisráðuneytið telji samningana auðvelda læknum að rukka fyrir gerviverktöku. Hætta á að sjúkrahúsið missi stöðu sína „Það er ljóst að þjónustan mun dragast verulega saman ef ekki finnst lausn á málinu,“ sagði Ingibjörg á þingi í gær og bætti því við að málið veki upp miklar áhyggjur starfsfólks. „Þetta veldur eðlilega miklum áhyggjum, ekki aðeins meðal starfsfólks og sjúklinga heldur einnig heilsugæslulækna á upptökusvæði SAk og lækna á Landspítala sem sjá ekki fram á að geta tekið við öllum þeim sjúklingum sem munu þá leita suður ef þjónustan fæst ekki lengur á Akureyri. Þetta er því, má segja, kerfislægt vandamál, ekki staðbundið.“ Ferliverkasamningarnir hafi verið lykillinn í að tryggja sérfræðiþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins, hafi reynst aðilum og sjúklingum vel. Mannekla sé töluverð á sjúkrahúsinu. „Ef ferliverkasamningar falla úr gildi eða læknar minnka við sig vinnu er hætta á að SAk nái ekki lengur að sinna hlutverki sínu sem varasjúkrahús. Þá gæti þurft að loka göngudeild og senda sjúklinga suður til rannsókna og meðferðar. Þjónustan á SAk hefur verið byggð upp af frábæru starfsfólki í áratugi og ef hluti hennar hverfur nú mun taka mörg ár að endurreisa hana.“ Spurði Ingibjörg hvort ráðherra hafi verið í samráði við stjórn Sjúkrahússins á Akureyri áður en ákvörðunin var tekin. Ekki rétt að sjúkrahúsið hafi fengið fyrirmæli Alma Möller heilbrigðisráðherra sagði í svörum til þingmanns að hún hafi fengið fyrirspurn um málið frá forstjóra sjúkrahússins í liðinni viku. Hún sagði ekki rétt að sínu mati að sjúkrahúsið hefði fengið fyrirmæli um að segja upp ferliverkasamningi líkt og komið hafi fram í máli þingmanns. „Þetta mál hófst í fyrra með bréfi frá fjármála- og efnahagsráðuneyti þegar hæstvirtur tíundi þingmaður Suðurkjördæmis var fjármálaráðherra. Þar var bent á svokallaða gerviverktöku og kosti og galla við verktakasamninga, en að gerviverktöku ætti að uppræta því að hún gæti sætt endurákvörðun skattayfirvalda.“ Heilbrigðisráðuneytið hafi fylgt erindinu eftir með bréfi í mars sem farið hafi til allra forsstjóra heilbrigðisstofnana. Þar hafi verið áréttaður munur á þessum samningum og síðan aftur í maí. „Og þar stendur orðrétt, með leyfi forseta: Forstjórar fari yfir verksamninga sína við heilbrigðisstarfsmenn með ákveðin sjónarmið í huga. Þarna er sem sagt forstjórum uppálagt að fara yfir samninga og sjá hvort um sé að ræða gerviverktöku. Það er rætt að það eigi auðvitað helst ekki að hafa verktakasamninga, heldur reyna að manna með föstum mannskap, en að það sé hægt í undantekningartilvikum,“ sagði ráðherra. „Ég var ekki í neinu samráði, af því að um það var spurt, við forstjóra áður en þetta mál var tekið upp. Það er ekki búið að segja upp þessum samningum en forstjóri vinnur að lausnum. Síðan hefur verið spurt hvort ráðuneytið sé með í ráðum og þá kom ákveðin fyrirspurn frá forstjóra í liðinni viku.“ Tryggja þurfi þjónustuna Steig þá Ingibjörg Isaksen aftur upp í pontu og sagði að annað hefði komið fram í máli stjórnar Sjúkrahússins á Akureyri um uppsögn samningana þegar hún hafi fundað með þeim í síðustu viku. Hún hygðist hinsvegar ekki munnhöggvast við ráðherra, málið snerist um þjónustu í heimabyggð. „Þjónustu sem íbúar hafa hingað til getað treyst á, þjónustu sem er afar mikilvægt að varasjúkrahús landsins geti sinnt. Ef áfram heldur sem horfir munum við sjá á eftir mikilli þekkingu hverfa úr heimabyggð, sem er bara gríðarlegt áfall fyrir svæðið.“ Steig þá ráðherra upp í pontu og sagðist sammála þingmanninum, um mikilvæga þjónustu væri að ræða sem tryggja þurfi með öllum ráðum. „Eins og ég nefndi áðan þá vinnur forstjóri að lausnum og er í lófa lagið að fresta þessum aðgerðum. Sú sem hér stendur mun ekki koma að þessu máli. Ég hef sagt mig frá því vegna skyldleika við einn af þeim aðilum sem þarna starfa þannig að það yrði þá annar ráðherra. Ég hef auðvitað metið hæfi mitt skref fyrir skref í þessu máli en nú er komið ákveðið erindi frá forstjóra. Það kom í liðinni viku og þá hafði ég þegar lagt drög að því. Þannig að sú sem hér stendur mun ekki koma að lausn þessa máls en vonandi annar í hennar stað.“
Akureyri Heilbrigðismál Framsóknarflokkurinn Samfylkingin Sjúkrahúsið á Akureyri Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira