Rory McIlroy vill verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. október 2025 19:32 Rory McIlroy fagnar hér sigri Evrópu í Ryderbikarnum. Getty/Richard Heathcote Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy hefur lýst yfir áhuga á að verða fyrirliði Ryder-liðs Evrópu einn daginn en ekki fyrr en „um miðjan fjórða áratuginn“ eins og hann orðar það.
McIlroy keppir á sínu fyrsta móti á Indlandi í þessari viku en hann snýr aftur til keppni eftir að hafa hjálpað Evrópu að halda Ryder-bikarnum með sigri á Bandaríkjunum í New York í síðasta mánuði. Hinn 36 ára gamli Norður-Íri hefur keppt í síðustu átta Ryder-bikarkeppnum og sem annar efsti maður heimslistans og núverandi Masters-meistari gerir hann ráð fyrir að vera í liðinu í nokkur skipti í viðbót – ekki síst á Írlandi árið 2027. En hann sagði á miðvikudag að hann vildi leiða liðið einhvern tímann í framtíðinni sem fyrirliði frekar en sem stjörnuleikmaður þess. „Algjörlega, ég myndi elska að verða fyrirliði einn daginn og ég tel mig mjög lánsaman að hafa fengið að fylgjast með nokkrum af bestu fyrirliðum sögunnar í Ryder-bikarnum úr fremstu röð,“ sagði McIlroy og nefndi Paul McGinley – sigurvegarann frá 2014 – og Luke Donald, sem leiddi Evrópu í síðustu tveimur keppnum. „En,“ bætti hann við, „vonandi ekki fyrr en um miðjan fjórða áratuginn, ef ég get haldið áfram að spila vel.“ McIlroy varð fyrir miklu áreiti frá bandarískum áhorfendum á Bethpage Black og svaraði stundum í sömu mynt í æstu andrúmslofti sem varð að lokum aukaatriði vikunnar. „Bara síðustu tvær vikur, að geta horft á hápunktana og bara séð, sérstaklega þessa fyrstu tvo daga, í fjórleik og fjórmenningi hversu gott evrópska liðið var,“ sagði McIlroy. „Bandaríkjamennirnir slógu nálægt; við slógum nær. Bandaríkjamennirnir setja niður pútt og við setjum niður pútt ofan á það, og það gerðist í hvert einasta skipti.“ „Það leiðinlega er að fólk man ekki eftir því og man eftir vikunni af röngum ástæðum. Ég myndi vilja breyta umræðunni og einbeita mér að því hversu gott evrópska liðið var og hversu stoltur ég var af því að vera hluti af því liði sem vann Ryder-bikar á útivelli,“ sagði McIlroy. Rory McIlroy has had time to reflect on what went down at Bethpage. And now he's ready to open up...🔗 https://t.co/AC1FvDEkta pic.twitter.com/ejXMPOig3q— Today's Golfer (@TheTodaysGolfer) October 15, 2025
Ryder-bikarinn Golf Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Enski boltinn Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Handbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira