Hjartavandamál halda Reyni frá keppni Sindri Sverrisson skrifar 22. október 2025 11:32 Reynir Þór Stefánsson (t.v.) smellir kossi á bikarinn eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Fram í vor. Þar var hann í algjöru lykilhlutverki. vísir/Anton Handboltamaðurinn Reynir Þór Stefánsson átti algjört draumavor þegar hann lék sinn fyrsta A-landsleik, var lykilmaður í tvöföldu meistaraliði Fram og samdi svo við þýska félagið Melsungen. Hann hefur hins vegar ekkert getað spilað með Melsungen vegna hjartavandamála.
Um þetta fjallar þýski miðillinn Bild og segir enn óljóst hvenær Reynir geti snúið aftur á handboltavöllinn. Bild segir að á undirbúningstímabilinu hafi Reynir verið greindur með gollurhússbólgu og bendir á að sé ekkert að gert geti það haft grafalvarlegar afleiðingar. Eftir greininguna hafi Reyni verið bannað að æfa og keppa. Þegar mynda átti Reyni hafi annað vandamál komið upp því hann hafi um árabil verið með málmplötu í bringubeininu. Fjarlægja hafi þurft plötuna til að hægt yrði að senda hann í segulómun. Bild segir að Reynir hafi þurft að halda sig við æfingar á þrekhjóli, undir eftirliti hjartalæknis. Búist sé við því að í desember fari Reynir í próf til að ganga úr skugga um að hann geti snúið aftur á liðsæfingar, og í kjölfarið smám saman farið að snúa aftur til keppni standist hann öll próf til þess. Reyni, sem er aðeins tvítugur, er ætlað stórt hlutverk hjá Melsungen sem tryggði sér krafta hans eftir að ljóst varð að Elvar Örn Jónsson færi til Magdeburg.
Þýski handboltinn Landslið karla í handbolta Mest lesið Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira