Sjáðu mörkin í verstu byrjun Hamranna í hálfa öld Sindri Sverrisson skrifar 25. október 2025 12:33 Lucas Paqueta leyndi ekki vonbrigðum sínum í gær. Getty/Robbie Jay Barratt West Ham tapaði 2-1 gegn nýliðum Leeds á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöld og skelfileg byrjun Hamranna á leiktíðinni heldur því áfram. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi.
Mörkin úr leiknum í gær, þeim fyrsta þessa líflegu helgi í ensku úrvalsdeildinni, má sjá hér að neðan. Klippa: Leeds - West Ham 2-1 West Ham er í næstneðsta sæti í deildinni með aðeins fjögur stig og gæti misst Úlfana upp fyrir sig á morgun. Í gær komst Leeds í 2-0 á fyrsta korterinu með mörkum frá Brenden Aaronson og Joe Rodon. Lucas Paqueta virtist hafa minnkað muninn en var naumlega rangstæður og það var ekki fyrr en á 90. mínútu sem að West Ham skoraði þegar Mateus Fernandes skallaði laglega í netið. Eini sigurinn kom gegn núverandi stjóra Um er að ræða verstu byrjun West Ham á einu tímabili í 52 ár. Liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð eftir að Nuno Espirito Santo var ráðinn og hann hefur ekki enn upplifað sigur. Hann var ráðinn í stað Grahams Potter, nýráðins landsliðsþjálfara Svía, sem rekinn var í september. Eins kaldhæðnislegt og það er þá kom eini sigur West Ham til þessa gegn Nottingham Forest, þegar Nuno var stjóri þess liðs. „Það eru mörg vandamál til staðar í félaginu okkar. Við eigum ekki að skýla okkur á bakvið vandamálin. Allir verða að vera líflegir, gera mikið meira og vera rétt staðsettir,“ sagði Nuno. Síðast þegar West Ham byrjaði svona illa, tímabilið 1973-74, tókst liðinu þó á endanum að bjarga sér frá falli. Leeds er í fínum málum, með 11 stig í 13. sæti eða 6 stigum frá fallsæti, nú þegar hin liðin eiga þó leik til góða um helgina.
Enski boltinn Mest lesið Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti „Ég fór einn inn í búningsklefa og grét“ Fótbolti Hafþór Júlíus fer aðeins varlegar í næstu heimsmetstilraun Sport Af hverju mega sumir tala bak við lófa á HM en aðrir ekki? Fótbolti Ganverskur drengur fer á kostum með enskum landsliðsmönnum Fótbolti „Ég held að við séum á heimleið“ Fótbolti „Ég er kominn á þann stað að ég þarf hjálp“ Sport Brasilía og Marokkó áfram en Skotar þurfa bíða Fótbolti Sögulegt afrek Suður-Afríku en Mexíkó fagnaði sérstaklega einni skiptingu Fótbolti Stjörnur framtíðarinnar og risaleikur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Dagatalið í enska boltanum: Titilvörn Arsenal hefst gegn nýliðum Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton Tekur við Crystal Palace eftir frábært tímabil í Frakklandi Elta Manchester United allt næsta tímabil Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Sonur Djibril Cissé samdi við Liverpool Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Sjá meira