Viðskipti innlent

Síldar­vinnslan birtir já­kvæða af­komu­viðvörun

Atli Ísleifsson skrifar
Gunnþór B. Ingvason er forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður SFS.
Gunnþór B. Ingvason er forstjóri Síldarvinnslunnar og formaður SFS. Vísir/Arnar

Síldarvinnslan hefur birt jákvæða afkomuviðvörun og ljóst að við vinnu stjórnenda á níu mánaða uppgjöri félagsins hafi komið í ljós að hagnaður verði nokkuð hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Viðvörunin var send til Kauphallar í gærkvöldi. Þar segir að í afkomuspá félagsins, sem lögð hafi verið fram á fyrri hluta árs, hafi verið gert ráð fyrir að EBITDA hagnaður samstæðu félagsins yrði á bilinu 78 til 84 milljónir Bandaríkjadala á árinu 2025.

Endurskoðuð áætlun stjórnenda félagsins gerir nú ráð fyrir að EBITDA hagnaður verði á bilinu 96 til 104 milljónir Bandaríkjadala, eða á bilinu 11,9 til 12,8 milljarða króna.

Í tilkynningunni segir að helstu ástæður þessa megi rekja til betri afurðaverða en áætlanir hafi gert ráð fyrir auk þess sem reksturinn hafi almennt gengið vel á árinu. Auk þess hafi veiðar verið að hluta umfram áætlanir.

Félagið mun birta níu mánaða uppgjör þann 27. nóvember næstkomandi í samræmi við fjárhagsdagatal.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×