Fótbolti

Segja spurningar vakna um stöðu Elísa­betar

Sindri Sverrisson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir klappar fyrir áhorfendum eftir leikinn gegn Írlandi í Leuven í gær.
Elísabet Gunnarsdóttir klappar fyrir áhorfendum eftir leikinn gegn Írlandi í Leuven í gær. Getty/Tomas Sisk

Belgískir fjölmiðlar velta fyrir sér stöðu Elísabetar Gunnarsdóttur sem þjálfara kvennalandsliðs Belgíu í fótbolta, nú þegar ljóst er að liðið er fallið niður í B-deild fyrir undankeppni HM á næsta ári.

Belgar léku í sama umspili og lið Íslands og Norður-Írlands mætast í síðar í dag. Belgar voru hins vegar mun óheppnari en Íslendingar þegar dregið var og mættu Írum sem eru í 27. sæti heimslistans, 17 sætum fyrir ofan Norður-Írland.

Úr varð æsispennandi einvígi á milli Írlands og Belgíu þar sem Írarnir unnu fyrri leikinn 4-2 á heimavelli en Belgar komust svo í 2-0 í fyrri hálfleik í gær. Í lok leiks skoruðu Írar og tryggðu sér þar með samtals 5-4 sigur í einvíginu og sæti í A-deild í undankeppninni fyrir HM í Brasilíu.

Elísabet tók við landsliði Belgíu af Yves Serneels í janúar en belgískir miðlar spyrja nú hvort hún ætti að óttast um starf sitt, eftir að ljóst varð að leiðin á HM er orðin mun grýttari.

„Hefur ekki haft mikinn tíma“

„Það vakna spurningar en hún hefur ekki haft mikinn tíma til að kynnast landsliðskonunum og þar með öllum belgísku leikmönnunum,“ segir Hermien Vanbeveren, sérfræðingur um belgíska landsliðið, á vefmiðlinum Sporza.

Hún segir belgíska liðið ráða vel við það að mæta sterkustu liðunum en að þegar það mæti slakari liðum eigi það erfitt með að stýra leikjunum.

„Gunnarsdóttir byrjaði ekki fyrr en í febrúar og var þá strax hent í djúpu laugina með leik gegn heimsmeisturum Spánar,“ segir Vanbeveren og að Elísabet hafi fengið þrjú verkefni í hendurnar.

„Hægt að draga hana til ábyrgðar fyrir það“

Fyrst var það riðlakeppni Þjóðadeildarinnar, þar sem Belgía lenti í þriðja sæti á eftir heimsmeisturum Spánar og Evrópumeisturum Englands. Því næst EM í sumar þar sem liðið tapaði gegn Ítalíu og Spáni og féll úr leik, þrátt fyrir sigur á Portúgal. Núna er svo verkefnið að komast á HM og orðið ljóst að það verður mun erfiðara en ella fyrst Belgía verður í B-deild.

„Það er hægt að draga hana til ábyrgðar fyrir það [niðurstöðuna á EM], rétt eins og fyrir tapið gegn Írlandi.“

„Gunnarsdóttir hefur því ekki náð tveimur af þremur markmiðum. Nú verður það skylda að komast á HM í gegnum B-deildina og umspilið í Þjóðadeildinni,“ segir Vanbeveren.

Heleen Jaques, fyrrverandi landsliðskona Belga, bætir við: „Belgíu hefur aldrei tekist að komast á HM, kannski tekst henni það.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×