Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 6. nóvember 2025 21:38 Enn hefur ekki tekist að hafa uppi á skartgripunum en verðmæti þeirra er talið vera um 90 milljónir evra. AP Lykilorðið að öryggismyndavélakerfi Louvre-safnsins þegar brotist var inn í síðasta mánuði var einfaldlega nafn safnsins. Engin öryggismyndavél sneri heldur að glugganum sem þjófarnir brutu til að komast inn.
Þann 19. október framdi hópur fólks rán á Louvre-safninu þar sem nokkrum krúnudjásnum Frakka var stolið. Þjófarnir komust á brott með átta skartgripi, þar á meðal kórónu, hálsmen og eyrnalokka. Alls hafa sjö verið handteknir í tengslum við ránið en einum sleppt lausum. Lögregla hefur ekki fundið neinn af skartgripunum. Í frétt ABC, þar sem haft er eftir ónefndum starfsmanni safnsins, segir að lykilorðið fyrir öryggismyndavélakerfi safnsins hafi einfaldlega verið nafn safnsins, Louvre. Svo virðist sem starfsmenn öryggisgæslunnar hafi verið ansi hugmyndasnauðir þegar kom að lykilorðagerð. Mikið hefur verið fjallað um öryggiskerfi safnsins en það tók þjófana einungis sjö mínútur að framkvæma glæpinn. Þeir komu stigabíl upp við hlið hússins og brutu glugga. Eina öryggismyndavélin sem var fyrir utan Apollo-salinn þar sem djásnin voru geymd náði ekki yfir gluggann sem þjófarnir brutu og fóru inn um. Hefur þú hugsað út í hverjar öryggisráðstafanirnar eru á söfnum Íslands? Smári Jökull Jónsson, fréttamaður Sýnar, skoðaði það nánar.
Skartgripum stolið á Louvre Frakkland Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira