Fellaskóli vann Skrekk Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 10. nóvember 2025 22:29 Úr atriði Fellaskóla. Anton Bjarni Fellaskóli vann Skrekk 2025, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík. Atriði nemendanna fjallaði um pressu sem fylgir því að upplifa væntingar annarra.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri tilkynnti sigurvegarann en keppnin var haldin í Borgarleikhúsinu líkt og venjan er. Atriði Fellaskóla ber nafnið Þrýstingsbylgja. Atriðið fjallaði um álagið sem ungmenni upplifa í samfélaginu og mikilvægi þess að standa með sjálfum sér og elta sína drauma. „Ég er ekki strengjabrúða,“ sagði voru lokaorð atriðsins. Átta grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu komust í úrslit og kepptust um verðlaunabikarinn. Meðal Fellaskóla voru Foldaskóli, Klettaskóli, Hagaskóli, Árbæjarskóli, Háteigsskóli, Breiðholtsskóli og Langholtsskóli. Þrjár undankeppnir voru haldnar þar sem samtals 742 nemendur tóku þátt fyrir hönd 25 skóla. Salka Gústafsdóttir leikkona og Bjarni Kristbjörnsson leikaranemi sáu um að kynna atriðin en Herra Hnetusmjör steig einnig á svið og flutti lagið Elli Egils. Í ár tóku 25 skólar þátt í Skrekk og 742 unglingar þátt í undanúrslitum. Átta skólar komust áfram í úrslitin. Fellaskóli hlaut jafnframt Skrekkstunguna Bókmenntaborgin og Miðja máls og læsis veita verðlaun fyrir skapandi notkun á íslensku í Skrekk. Verðlaunin heita Skrekkstungan, nafn sem var valið af unglingum 2022. Markmið verðlaunanna er að vekja áhuga unglinga á íslensku sem efnivið sköpunar í sviðslistum. Í ár hlaut Fellaskóli Skrekkstunguna en í rökstuðningi dómnefndar Skrekkstungunnar segir: „Atriðið sem fær Skrekkstunguna árið 2025 nýtir íslensku á skapandi hátt í söng, tali og einræðu. Atriðið er á vönduðu og fallegu máli, ljóðrænt og seiðandi en líka skýrt og aðgengilegt. Málsnið hvers hluta er viðeigandi fyrir efni hans, tungumálið er óþvingað og slípað og hvert orð þjónar atriðinu. Flytjendur nota tungumálið í eigin þágu og er titillinn þar engin undantekning.“
Skrekkur Reykjavík Krakkar Grunnskólar Menning Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira