Af og frá að fimmti þáttur hafi verið klipptur extra mikið Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. nóvember 2025 12:01 Eftir fimmta þátt af Bannað að hlæja gengu sögusagnir milli fólks um að þátturinn hefði verið óvenjumikið klipptur. Slúðrað var um að hlaðvarps-keppni milli Komið gott og Dr. Football réði þar för. Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal segir það flóknasta við gerð annarrar seríu af Bannað að hlæja hafi verið að velja þá fimm sem sitja saman við borðið hverju sinni. Hann segir orðróm um að einn þáttur í nýju seríunni hafi verið klipptur extra mikið vera runninn undan rifjum Dóra DNA.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í sjónvarps- og kvikmyndahlaðvarpinu Tveir á toppnum þangað sem Auðunn mætti til að ræða nýju seríuna sem vakið hefur mikla athygli og sýnd er á streymisveitunni Sýn+. Þátturinn er í stjórn blaðamannanna Þórarins Þórarinssonar og Odds Ævars Gunnarssonar og berst talið víða að. Meðal annars að sérstökum jólaþætti sem væntanlegur er af Bannað að hlæja og því hvaða maður er sá eini sem hefur afþakkað boð í þættina vinsælu. Hafði sínar hugmyndir um besta borðið Auðunn er meðal annars spurður að því í þættinum hvernig það hafi verið að setja saman ólíka hópa þáttanna. Þar segir hann það vera mest krefjandi verkefnið fyrir seríuna, enda ekki hægt að vita nákvæmlega hvernig þátturinn verður fyrir fram. Þá berst talið að því hvort honum hafi þótt einhver samsetning ekki hafa gengið upp, eftir á að hyggja. Þær stöllur í Komið gott fengu það verkefni að grilla Stefán Einar. „Sko ég hélt að besta borðið yrðu Hjöbbi, Komið gott, Stefán Einar og Nablinn. Ég hélt það yrði besta borðið. En það sem ég sá svo snemma er að þau hefðu öll verið betri á öðru borði. Hvernig er hægt að orða þetta best? Þau voru öll í svona: „Heyrðu ég er ekki að fara að hlæja að þér.“ Fattarðu?“ segir Auðunn. Vísar hann þar til fimmta þáttar nýju seríunnar þar sem Ólöf Skaftadóttir og Kristín Gunnarsdóttir hlaðvarpsstjórnendur Komið gott mættu til leiks ásamt öðrum vinsælum hlaðvarpsmönnum, Hjörvari Hafliðasyni og Stefáni Einari Stefánsson, auk þess sem Andri Már Eggertsson íþróttafréttamaður, betur þekktur sem Nablinn mætti og sló í gegn. Falsfréttir í boði Dóra DNA Var þetta ekki bara eitthvað podcast beef, snýst ekki allt um vinsældarlistann? „Ja, samt, þau voru öll ógeðslega ánægð með borðið þegar ég var að segja þeim frá því. Það var enginn: „Nei, ég vil fara á annað borð.“ En ég held að flestir þar hefðu skinið betur á öðru borði,“ segir Auðunn. Þá berst talið að því í Tveimur á toppnum að það hafi verið miklar vangaveltur í umræðunni á Messenger-spjöllunum um það hvort þátturinn hefði verið klipptur extra mikið. „Nei, það er reyndar bara eitthvað sem Dóri DNA er búinn að koma af stað, að þetta hafi allt verið klippt eitthvað. Um leið og hann fréttir eitthvað þá er bara búið að blása upp alla söguna. Það kom einhver brandari sem var bara svona: Ah er hægt að taka hann út, já minnsta mál í heimi. Það var ekki meira en það,“ segir Auðunn. „Langmest klippti þátturinn er úrslitaþátturinn í seríu eitt. Það er langmest klippti þátturinn. Þar ertu bara með Sveppa og Hjöbba og Sóla og Önnu Svövu og allir bara komnir vel í það. Það er bara allt látið flakka, það var ekki hægt að setja allt.“ Besti þátturinn í loftið um jólin Eins og áður segir eru allir sex þættirnir mættir á Sýn+. Auðunn uppljóstrar hinsvegar í Tveir á toppnum að enn sé einn þáttur eftir sem enn er ekki farinn í loftið. „En það er reyndar einn þáttur eftir. Ég skúbba því bara hérna hjá ykkur. Það verður „Christmas Special.“ Það er búið að taka hann upp,“ segir Auðunn og bætir því við að hann fari í loftið 17. desember. Aðspurður sagði hann tvo fyrri keppendur, Sveppa og Bassa Maraj, mæta aftur til leiks en hin þrjú, Ari Eldjárn, Saga Garðars og Vala Kristín, hafi aldrei komið áður. Ari og Saga hafi bæði átt að vera í seríu eitt og tvö en komust ekki fyrr en fyrst núna. „Þetta er alvöru og þátturinn er stórkostlegur,“ segir Auðunn og bætir við að hann sé ekki frá því að þetta sé besti Bannað að hlæja þátturinn sem hann hafi gert.
Bannað að hlæja Grín og gaman Hlaðvörp Bíó og sjónvarp Mest lesið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira