Sverrir Einar ákærður en fer í hart á móti Árni Sæberg skrifar 17. nóvember 2025 15:14 Sverrir Einar Eiríksson er meðal annars eigandi Nýju Vínbúðarinnar. Skjáskot Stöð 2 Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld. Þess er krafist að hann verði dæmdur til refsingar og í atvinnurekstrarbann. Hann hefur kært Ríkisskattstjóra og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgerða á starfstöðvum félaga hans í apríl í fyrra.
Þetta kemur fram í ákæru Héraðssaksóknara á hendur Sverri Einari, sem gefin var út þann 30. október síðastliðinn. Hafi skotið undan skatti í rekstri fjögurra félaga Hann sætir ákæru í fjórum liðum sem stjórnandi félaganna B Reykjavík ehf., SEBX ehf., SG8 ehf. og Þaks, byggingafélags ehf., fyrir að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti og staðgreiðslu opinberra gjalda, sem haldið hafði verið eftir af launum starfsmanna félaganna. Honum er gefið að sök að hafa þannig komist hjá greiðslu alls 59,71 milljónar króna. Þess er krafist að Sverrir Einar verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar auk þess að þess er krafist að honum verði bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hætti að stjórnun eða fara með meiri hluta atkvæðisréttar í slíku félagi í allt að þrjú ár. Kærir vegna aðgerða í apríl í fyrra Á föstudaginn, sama dag og Rúv og DV fjölluðu um ákæruna á hendur honum, birti Sverrir Einar yfirlýsingu á Facebook, þar sem kemur fram að hann hafi sent Héraðssaksóknara formlega kæru á hendur Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Ríkisskattstjóra. Það hafi hann gert vegna aðgerða embættanna tveggja þann 26. apríl í fyrra. Líkt og Vísir fjallaði um á sínum tíma voru skemmtistaðirnir B5 og Exit innsiglaði auk Nýju vínbúðarinnar og Sverrir Einar handtekinn, vegna gruns um að hafa rofið innsigli. Mál vegna þess var að lokum fellt niður. „Þetta er eðlilegt og faglegt skref í átt að því að fá óháða og gagnsæja skoðun á málinu í heild — fyrir mig, fyrir stjórnsýsluna og fyrir atvinnulífið,“ segir Sverrir Einar meðal annars í færslunni, sem má sjá hér að neðan:
Dómsmál Skattar, tollar og gjöld Næturlíf Efnahagsbrot Tengdar fréttir Eigandi Nýju vínbúðarinnar dæmdur fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik í tengslum við rekstur þriggja einkahlutafélaga. 7. apríl 2022 11:41 Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars. 18. janúar 2022 07:01 Sverrir Einar kærir lögregluþjón fyrir rangar sakagiftir Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar og fyrrverandi eigandi skemmtistaðarins B5, hefur lagt fram kæru á hendur lögregluþjóns sem sakaði hann um að tálma störf lögregluþjóna og veist að sér með ofbeldi. Umræddur lögregluþjónn hafði áður kært Sverri en bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari hafa vísað þeirri kæru frá. 26. október 2024 10:51 Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur sett veitingastaðinn Þrastalund á sölu og stefnir á að hefja uppbyggingu annars staðar á Suðurlandi. Þá selur hann sex íbúða hús í Reykjanesbæ á sama tíma. 30. október 2025 15:06 Sendir Svein Andra í mál við ríkið Sverrir Einar Eiríksson eigandi B Reykjavík ehf., sem rak skemmtistaðina Bankastræti Club og B5, segist ætla í skaðabótamál við ríkið vegna tjóns og misréttis sem hann segir sig og staðinn hafa orðið fyrir vegna ítrekaðs áreitis lögreglu meðan hann starfaði. Hann segir gjaldþrot B5 beina afleiðingu fordæmalauss eineltis eins lögreglumanns á hendur honum og staðnum og afskiptaleysis yfirmanna lögreglumannsins. 11. október 2025 17:04 Mest lesið Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Erlent Þessi sóttu um hjá Höllu Innlent Guðmundur Ingi segir af sér Innlent Ragnar Þór verður ráðherra Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Rússar senda herskip til móts við olíuskip elt af Bandaríkjunum Erlent „Málið er að ástandið fer versnandi“ Innlent „Trúið ekki þessari áróðursvél“ Erlent „Ég efa að NATO yrði til staðar fyrir okkur“ Erlent „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Innlent Fleiri fréttir Atvinnulífið misnoti heilbrigðiskerfið Tvö hundruð manns bjargað af þjóðvegi 1 Leita að manneskju við Sjáland Ragnar Þór verður ráðherra Guðmundur Ingi segir af sér Telur ólíklegt að aðrar þjóðir berjist með Dönum Hátt í hundrað á fjöldahjálparstöð Bæjarfulltrúar slást um oddvitasætið í Hafnarfirði Ekki fengið kvartanir um Grok-myndir af íslenskum konum Neyðarástand í uppsiglingu takist ekki að fjölga sjúkraliðum Mistök ollu því að sumir fengu ekki boð Þessi sóttu um hjá Höllu Kynferðisbrot gegn dreng í Hafnarfirði komið til saksóknara Ungt barn með mislinga á Landspítalanum Halda í opinbera heimsókn til Eyja Ekki komið til héraðssaksóknara Gjaldskylduskógurinn verði grisjaður Stormur í aðsigi: Ræða sviptingar í alþjóðastjórnmálum í pallborði Sex á slysadeild og bílarnir óökufærir Leigubílstjóri sem keypti vændi fær ekki að starfa áfram Meðalaldur hjúkrunarfræðinga, sjúkraliða og ljósmæðra heldur áfram að hækka „Málið er að ástandið fer versnandi“ Ekið inn í verslun og á ljósastaur Þvag, saur og uppköst í klefum Leitar afkomenda Ungverjanna sem komu til Íslands fyrir sjötíu árum Símabann skilað góðum árangri þó sumir stelist í símann „Svartir sauðir misnoti réttindin“ og Reykjavík ræðst í aðgerðir Hildur hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin Rússneskt skip í íslenskri lögsögu og nemendur eiga erfitt með símabann Kleip og sparkaði í fjölda lögreglumanna og látin dúsa í einangrun mánuðum saman Sjá meira
Eigandi Nýju vínbúðarinnar dæmdur fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar, hefur verið dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattsvik í tengslum við rekstur þriggja einkahlutafélaga. 7. apríl 2022 11:41
Eigandi Nýju vínbúðarinnar ákærður fyrir skattsvik Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar sem komið hefur að alls kyns athyglisverðum rekstri undanfarin ár, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir skattsvik og peningaþvætti í rekstri þriggja einkahlutafélaga sem öll hafa orðið gjaldþrota og verið afskráð. Málið verður þingfest í mars. 18. janúar 2022 07:01
Sverrir Einar kærir lögregluþjón fyrir rangar sakagiftir Sverrir Einar Eiríksson, eigandi Nýju vínbúðarinnar og fyrrverandi eigandi skemmtistaðarins B5, hefur lagt fram kæru á hendur lögregluþjóns sem sakaði hann um að tálma störf lögregluþjóna og veist að sér með ofbeldi. Umræddur lögregluþjónn hafði áður kært Sverri en bæði héraðssaksóknari og ríkissaksóknari hafa vísað þeirri kæru frá. 26. október 2024 10:51
Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur sett veitingastaðinn Þrastalund á sölu og stefnir á að hefja uppbyggingu annars staðar á Suðurlandi. Þá selur hann sex íbúða hús í Reykjanesbæ á sama tíma. 30. október 2025 15:06
Sendir Svein Andra í mál við ríkið Sverrir Einar Eiríksson eigandi B Reykjavík ehf., sem rak skemmtistaðina Bankastræti Club og B5, segist ætla í skaðabótamál við ríkið vegna tjóns og misréttis sem hann segir sig og staðinn hafa orðið fyrir vegna ítrekaðs áreitis lögreglu meðan hann starfaði. Hann segir gjaldþrot B5 beina afleiðingu fordæmalauss eineltis eins lögreglumanns á hendur honum og staðnum og afskiptaleysis yfirmanna lögreglumannsins. 11. október 2025 17:04