Edwald-feðgar kaupa hlið við hlið Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 20. nóvember 2025 16:02 Ari og Páll Edwald eru báðir menntaðir lögfræðingar. Facebook Ari Edwald, lögfræðingur og fyrrverandi forstjóri Mjólkursamsölunnar, hefur fest kaup á íbúð í fjölbýlishúsi í Þorraholti í Garðabæ. Sonur hans, lögfræðingurinn Páll Edwald, keypti íbúð í sama húsi ásamt kærustu sinni, Selmu Eir Hilmarsdóttur læknanema. Stigagangarnir eru hlið við hlið en húsið er fyrsta fjölbýlishúsið sem er fullbúið í nýju hverfi Hnoðraholts.
Ari hefur lengi verið áberandi í íslensku atvinnulífi. Hann var um árabil forstjóri 365 miðla, áður framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og þar á undan aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra og síðar sjávarútvegsráðherra. Páll hefur einnig komið víða við. Á meðan hann stundaði laganám stofnaði hann bar og pizzustað á Egilsstöðum og hefur síðustu þrjú ár starfað sem yfirlögfræðingur hjá byggingarfélaginu Reir Verk, sem byggði umræddar íbúðir. Foreldrar áðurnefndrar Selmu Eirar eru eigendur Reir Verks. Hönnun og fallegt útsýni Húsið er nýtt lyftuhús með samtals 49 íbúðum í þremur stigagöngum. Innanhússhönnun var í höndum Bjarka Snæs Smárasonar, sem valdi liti, efni og innréttingar sem gefa heildarmyndinni klassískt og látlaust yfirbragð. Íbúð Ara er 165 fermetrar að stærð á efstu og fjórðu hæð, með glæsilegu útsýni. Stofurýmið er opið og bjart og þaðan er útgengt á rúmgóðar og yfirbyggðar þaksvalir með tengi fyrir heitum potti. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi, þar af hjónasvíta með sérbaðherbergi og fataherbergi. Kaupverðið nam 183 milljónum króna. Íbúð Páls og Selmu Eirar er 82,5 fermetrar á þriðju og efstu hæð í stigaganginum við hliðina á. Eignin skiptist í opið og bjart stofurými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Kaupverðið nam 79,9 milljónum króna.
Fasteignamarkaður Garðabær Tímamót Mest lesið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Menning Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Lífið Fleiri fréttir Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Sjá meira