Þegar Dorrit var forsetafrú Auður Ösp Guðmundsdóttir og Vilhelm Gunnarsson skrifa 23. nóvember 2025 09:00 Ólafi Ragnari Grímssyni forseta var skemmt þegar Dorrit brá á leik með lukkudýri á leik FH og Hauka í handknattleik. Vísir/Vilhelm Þegar Dorrit Moussaieff varð forsetafrú Íslands árið 2003 markaði hún upphafið að einni litríkustu forsetafrúartíð sem landið hefur séð. Dorrit, sem var fædd í Ísrael og uppalin í London, kom inn á Bessastaði með alþjóðlegan blæ og ólíkari orku en Íslendingar höfðu áður vanist.
Dorrit trúlofaðist Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands árið 2000. Þau giftu sig á afmælisdegi forsetans 14. maí 2003. Á árunum sem forsetafrú beitti Dorrit sér fyrir því að kynna íslenska menningu og listir á alþjóðavettvangi, koma ungu íslensku listafólki á framfæri og leggja lið velferðarmálum barna og unglinga, einkum þeirra sem eiga við fötlun og geðræn vandamál að stríða. Ásamt forsetanum tekið virkan þátt í því að styrkja útrás íslenskra fyrirtækja og markaðsöflun á erlendum vettvangi. Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Vísis smellti ófáum myndum af Dorrit við hin ýmsu tækifæri. „Það sem stendur upp úr er hvað Dorrit var áberandi hress og opin. Það var svo sannarlega aldrei leiðinlegt í kringum hana. Hún tók sig aldrei of alvarlega; hún var alltaf til í að gera hlutina og var alveg óhrædd við að bregða á leik fyrir framan myndavélarnar,“ rifjar Vilhelm upp. Árið 2004 veitti Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, Bill Clinton fyrrverandi forseta Bandaríkjanna og Hillary Clinton, öldungardeildarþingmanni, sérstaka viðurkenningu fyrir framlag þeirra til landafundahátíðarhaldanna árið 2000. Þessa mynd af Dorrit og Hillary tók Vilhelm á Bessastöðum. „Þær tvær voru að spjalla þarna úti og þá kom svolítið rok og þá fauk kjóllinn hennar Dorritar upp. Allir hinir ljósmyndarnir sem voru þarna forðuðust að taka mynd en ég lét nú bara vaða. Hún Dorrit kippti sér lítið upp við þetta, sem segir nú töluvert um hvernig týpa hún er,“ segir Vilhelm.Vísir/Vilhelm Þessi mynd er tekin í Ólympíuþorpinu í Peking þann 21.desember árið 2008. Dorrit hafði sest aftar í vagninn en Kínverjarnir vildu hafa hana framar svo hún klifraði yfir sætin á meðan Ólafur Ragnar fór út úr vagninum og settist svo aftur inn. „Sem var mjög klassískt fyrir hana; flestir hefðu orðið pirraðir og móðgaðir yfir því að þurfa að færa sig, en hún lét bara vaða og vippaði sér þarna yfir,“ rifjar Vilhelm upp.Vísir/Vilhelm Logi Geirsson tók ekki eftir því að Dorrit skipti við Ingu, sem var nuddari liðsins. Vísir/Vilhelm Afhending Eyrarrósarinnar árið 2011. „Þarna sprakk hún úr hlátri eftir að hafa lesið eitthvað vitlaust.“Vísir/Vilhelm Dorrit Moussaieff smellir einum á Guðni Th. Jóhannesson og óskar honum til hamingju með að hafa verið kosinn forseti Íslands, þegar þau hittust í Nice í Frakklandi á Evrópumótinu í knattspyrnu, í júní árið 2016. „Þetta var í fyrsta skipti sem forsetahjón hittust síðan Kristján Eldján tók við.“Vísir/Vilhelm Afhending Eyrarrósarinnar árið 2006.Vísir/Vilhelm Þessi mynd var tekin í mars árið 2011. Ólafi Ragnari Grímssyni forseta var skemmt þegar Dorrit brá á leik með lukkudýri á leik FH og Hauka í handknattleik. „Þessi mynd fékk hellings viðbrögð, enda er nú hægt að lesa ýmislegt í hana. Dorrit brá þarna á leik, og svona endaði þetta bara í þessu mómenti,“ rifjar Vilhelm upp.Vísir/Vilhelm Bleiku ljósin tendruð á Bessastöðum í roki, í septemberlok árið 2005.Vísir/Vilhelm Þessa mynd tók Vilhelm á Bessastöðum í desember árið 2011.Vísir/Vilhelm
Ljósmyndun Einu sinni var... Ólafur Ragnar Grímsson Myndasögur Vilhelms Tengdar fréttir Þegar allt sauð upp úr Sautján ár eru nú liðin síðan búsáhaldabyltingin náði hámarki sínu þegar Alþingi kom saman til fundar í fyrsta sinn eftir sérstakt jólafrí. Þremur mánuðum fyrr höfðu íslensku bankarnir fallið hver á fætur öðrum. 16. nóvember 2025 09:00 Mest lesið Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Lífið Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Lífið Uppgötvuð á götum Barcelona Lífið Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni Lífið Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni Tíska og hönnun Valin versti ljósmyndari heims Lífið Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Lífið 50+: Erfiða tengdamamman og sonurinn á milli Áskorun Hvað veistu um... Snæfellsnes? Lífið Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Lífið Fleiri fréttir Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Mætti á 95 ára Chevrolet og tók sæti á þingi Léttist um átján kíló á ógnarhraða með hjálp gervigreindar Bar upp bónorðið á Bæjarins beztu Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Allir héldu Michelin-stjörnunni Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða Áslaug býður í partý Matt Brown er látinn „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Sjá meira
Þegar allt sauð upp úr Sautján ár eru nú liðin síðan búsáhaldabyltingin náði hámarki sínu þegar Alþingi kom saman til fundar í fyrsta sinn eftir sérstakt jólafrí. Þremur mánuðum fyrr höfðu íslensku bankarnir fallið hver á fætur öðrum. 16. nóvember 2025 09:00