Átta ára fangelsi fyrir að skipuleggja fjöldamorð á Eurovision Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 27. nóvember 2025 10:41 Eurovision 2020 átti að fara fram í Rotterdam en var aflýst. Keppnin fór hins vegar fram í borginni ári síðar. Getty/Soeren Stache 23 ára sænskur karlmaður að nafni Alexander Holmberg hefur verið dæmdur í átta ára fangelsi í Lúxemborg fyrir að leggja á ráðin um að framkvæma hryðjuverk á Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í Rotterdam í Hollandi árið 2020.
Réttarhöld fóru fram í sumar en dómurinn hefur nú verið birtur og gerir sænska Aftonbladed grein fyrir efni hans í dag. Holmberg verður einnig gert að undirgangast svokallaða af-öfgavæðingarmeðferð en hann viðurkenndi fyrir dómi að vera meðlimur í hryðjuverkasamtökum og að hann hafi haft í hyggju að fremja hryðjuverk, bæði í Svíþjóð, Lúxemborg og í Hollandi. Þá var hann fundinn sekur um vopnalagabrot en hann var með eins konar sprengjuverkstæði í kjallaranum. Þá segir í dómnum að Holmberg hafi gegnt leiðtogahlutverki í hryðjuverkasamtökum, en sex ár af átta ára fangelsisdómnum eru skilorðsbundin að því er segir í frétt Aftonbladed. Ein af forsendunum fyrir þessu er sögð að hann undirgangist prógramm í Lúxemborg sem ætlað er að vinda ofan af öfgahyggju Svíans unga. Ákæruvaldið hafði farið fram á tólf ára fangelsi en verjendur fóru fram á mildari refsingu, einkum þar sem Holberg var ekki orðinn 18 ára þegar flest brotin voru framin. Hugðust loka útgönguleiðum og höfðu teikningar af höllinni Skotmark árásarinnar sem átti að fara fram í Rotterdam 2020 voru gestir og aðdáendur Eurovision sem hugðust sækja söngvakeppnina, en líkt og kunnugt er var keppninni aflýst það ár vegna kórónuveirufaraldursins. Keppnin fór hins vegar fram í Rotterdam ári síðar. Í Google-skjali sem er meðal gagna málsins var að finna upplýsingar um áformin sem Holmberg hafði deilt með öðrum manni. Þar er útlistað hvernig ætlunin hafi verið að lauma sér inn í gervi öryggisvarða og loka flóttaleiðum. Útvegaðar höfðu verið teikningar af tónleikahöllinni og gerð drög að „árásarsmiðsmynd.“ Eurovision hafi verið valið sem skotmark vegna þess hversu opinskátt „hinseginvænt“ yfirbragð keppninnar væri. Holmberg var engu að síður handtekinn í Lúxemborg í febrúar 2020, nokkrum mánuðum áður en keppnin átti að fara fram, eftir að lögreglan fékk ábendingu frá leyniþjónustunni sem hafði komist á snoðir um að „hægriöfgamaður í Lúxemborg hafi keypt efni og skipuleggi hryðjuverk.“
Svíþjóð Lúxemborg Holland Hryðjuverkastarfsemi Eurovision Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira