Murielle elti Óskar í Garðabæinn Sindri Sverrisson skrifar 3. desember 2025 13:39 Murielle Tiernan er mætt í búning Stjörnunnar. Stjarnan Kvennalið Stjörnunnar í fótbolta hefur tryggt sér krafta markahróksins Murielle Tiernan sem kemur til félagsins, líkt og nýr þjálfari liðsins, frá Fram.
Murielle hefur gjörsamlega raðað inn mörkum á íslenskum fótboltavöllum síðan hún kom fyrst hingað til lands til að spila með Tindastóli í 2. deild árið 2018. Það sumar skoraði hún 24 mörk í 14 leikjum og hún skoraði svo 49 mörk á tveimur árum í Lengjudeildinni þegar Tindastóll vann sig upp í efstu deild. Hún lék með Tindastóli fram að sumrinu 2024 þegar hún kom til Fram og átti ríkan þátt í að koma liðinu upp í Bestu deildina. Þar skoraði hún svo ellefu mörk í 21 leik á síðustu leiktíð og átti sinn þátt í að halda Fram uppi. Alls hefur Murielle skorað 21 mark í 58 leikjum í efstu deild og 77 mörk í 69 leikjum í næstefstu deild hér á landi. „Ég tel það mikilvægt skref í uppbyggingarfasanum sem við viljum taka á næstu árum að vera með réttu karakterana,“ segir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, sem þjálfað hefur Murielle hjá Fram síðustu tvö ár. „Murielle Tiernan er ekki bara fantagóður framherji sem kann að skora mörk heldur er hún jákvæður leiðtogi sem gefur af sér, bæði innan sem utan vallar. Ég er gríðarlega ánægður að fá hana í Garðabæinn og vænti mikils frá henni,“ segir Óskar Smári á Facebook-síðu Stjörnunnar.
Besta deild kvenna Stjarnan Fram Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“