Gervigreind á jólaísnum hafi komið á óvart Tómas Arnar Þorláksson skrifar 4. desember 2025 22:39 Anton Jónas Illugason, formaður Félags íslenskra teiknara. vísir/bjarni Ódýrar leiðir í markaðssetningu með hjálp gervigreindar hafa áhrif á ímynd vöru og vörumerkja gagnvart neytendum. Formaður íslenskra teiknara segir það koma á óvart að Kjörís hafi notað gervigreind til að myndskreyta jólaís.
Hér fyrir ofan má sjá jólaauglýsingu Coca-Cola í ár. Auglýsingin þykir umdeild vegna notkunar gervigreindar til að endurgera fræga auglýsingu fyrirtækisins frá 1995. Það hefur verið gagnrýnt af ýmsum sem vilja meina auglýsinguna bera þess merki að vera sálarlaus og skorta frumleika. Svo virðist sem stórfyrirtæki prófi sig áfram í auknum mæli við að nýta gervigreindina í markaðsefni fyrir ýmis konar vörur. Þróunin er þó ekki aðeins bundin við fyrirtæki fyrir utan landsteinana en sem dæmi skjóta reglulega upp kollinum íslenskar auglýsingar sem virðast vera gerðar með gervigreind. Til dæmis hefur bókaútgáfan Óðinsauga nýtt tækninýjungina til að myndskreyta barnabækur. Þetta og fleiri dæmi má sjá í spilaranum hér að neðan. Þá hafa orðið miklar umræður í kringum pakkningar jólaíss frá Kjörís en þar er gervigreind notuð til að myndskreyta pakkningar sem hefur lagst misvel í fólk. Samkvæmt hönnunarstofunni á bak við skreytinguna var þessi leið farin þar sem skammur tími var til stefnu. Markaðsdeild Kjöríss var meðvituð um gervigreindarnotkun. Anton Jónas Illugason, formaður Félags íslenskra teiknara, segist hafa orðið var við þó nokkra gervigreindar markaðsetningu undanfarið. Það komi á óvart að Kjörís fari þá leið. „Þetta endurspeglar einhvern veginn hvernig fyrirtæki koma fram og Kjörís slær mann sem fjölskyldufyrirtæki af landsbyggðinni og hefur verið með mikla natni í sínu markaðsstarfi. Manni finnst skrítið að sjá þau fara í svona ódýran kost sem er gervigreind. Sérstaklega fyrir jólatíðina sem er mjög tengd tilfinningum.“ Hann segir þó dæmi um að gervigreindin sé nýtt sem tól með góðum árangri. „En það sem maður virðist vera að sjá í sumum tilfellum er bara að treysta tólinu í blindni og bara stimpla eitthvað inn og treysta því sem hinni endanlegu afurð.“ Hann segir listamenn ekki þurfa að hafa of miklar áhyggjur að gervigreindin skipti þeim út og bendir á að ódýrari leiðir hafi áhrif á ímynd vöru og vörumerkis. „Ég held að neytendur hafi ekki mikinn húmor fyrir því að þau séu að spara svona mikið í sínu starfi við að tala við neytendur. Þá taparðu rosa mikilli viðskiptavild frá fólki. Þetta er smá svona: Þú ert að hreyta einhverju ódýru í mig en ég á að vera tryggur við þig sem neytandi.“
Auglýsinga- og markaðsmál Gervigreind Myndlist Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira