Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands Daði Rafnsson, Haukur Magnússon, Kristján Vigfússon, Margrét Manda Jónsdóttir og Martin Swift skrifa 5. desember 2025 13:01 Virðulegi forsætisráðherra, Við undirrituð, íbúar á höfuðborgarsvæðinu og meðlimir Hljóðmarkar, höfum alvarlegar áhyggjur af stefnu ríkisstjórnarinnar í nýrri samgönguáætlun. Þar er talað um að festa Reykjavíkurflugvöll í sessi og hefja uppbyggingu á nýrri flugstöð. Á sama tíma rignir inn kvörtunum vegna hljóð- og loftmengunar inn til heilbrigðiseftirlita á höfuðborgarsvæðinu. Ekkert samtal eða samstarf er við íbúa sem búa undir áhrifasvæði Reykjaflugvallar. Samtökin Hljóðmörk íhuga nú möguleikann á hópmálsókn gegn íslenska ríkinu vegna langvarandi vanrækslu stjórnvalda á að verja rétt, heilsu og öryggi íbúa. Stjórnmálafólk hefur brugðist landsmönnum Íbúasamtökin Hljóðmörk hafa margoft hitt hagsmunaaðila og stjórnsýslu sem að flugvellinum koma og hafa aðilar tekið undir og verið sammála stefnumálum okkar sem má flokka í þrennt: 1. Að óþarfa þyrluflugi með ferðafólk verði fundinn nýr staður 2. Að einkaþotum auðkýfinga verði gert að lenda í Keflavík 3. Að staðið verði við samning ríkis og borgarinnar um að finna kennslu- og áhugamanna flugi nýja aðstöðu utan Reykjavíkur (skv. samningi frá 2013). Stjórnvöld hafa í áratugi afhent sérhagsmunahópum ákvörðunarvald yfir málefnum flugvallarins. Í stað þess að verja hagsmuni almennings hefur vald og áhrif færst í hendur fárra aðila sem hafa komist upp með að stýra umræðunni og stefnumótuninni. Þrátt fyrir að staðsetning flugvallarins hafi verið umdeild frá upphafi, hefur ekki verið sýndur vilji til að leysa málið á málefnalegan og faglegan hátt. Íbúar hafa þurft að berjast fyrir hverri einustu úrbót, til dæmis þegar næturflug var loks stöðvað eftir langvarandi mótmæli og þrýsting frá fólki sem einfaldlega vildi fá svefnfrið fyrir sig og börnin sín. Nú berjast íbúar fyrir brottflutningi óþarfa flugumferðar frá Reykjavíkurflugvelli. Þeirri tegund flugumferðar sem er hættulegust fyrir okkur íbúa með hærri flugslysatíðni og gríðarlegri hávaða- og loftmengun. Óöryggi, mengun og ábyrgðarleysi Það sem hefur komið okkur í samtökunum mest á óvart er hversu óöruggur og mengandi völlurinn er og hvernig fáum, en vel tengdum einstaklingum, í flugsamfélaginu hefur tekist að kljúfa þjóðina á meðan stjórnmálafólk varpar frá sér allri ábyrgð. Samgöngustofa sem ber lagalega ábyrgð á flugumferð yfir landinu er að miklu leyti stýrt af fulltrúum sérhagsmunahópa flugmála en á sama tíma fá íbúar engan fulltrúa við borðið. Samskipti okkar við stofnunina staðfesta að hagsmunir íbúa skipta stofnunina ekki máli og þvert á móti stefnt er að því að beina enn meiri flugumferð yfir íbúa byggðir landsins og helstu stofnanir ríkisins — grunnskóla, leikskóla, sjúkrahús og útivistarsvæði. Við spyrjum: Hvernig í ósköpunum getur þetta talist ásættanlegt? Reykjavík er ein flugmengaðasta borg Evrópu og enginn ber ábyrgð Við búum í einni flugmenguðustu borg Evrópu. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og Kópavogs hafa fengið gríðarlega mikið af kvörtunum vegna hávaða sl ár. Kennsluvélar hringsóla yfir íbúabyggð tugum sinnum á dag frá morgni fram á kvöld. Þyrluferðir fyrir sterkefnaða ferðamenn og einkaþotur ríkasta fólks í heimi hafa forgang í miðborg Reykjavíkur, á gjaldskrá sem er lægri en við borgum fyrir bílastæði á sama stað. Meðlimir Hljóðmarkar í flestum hverfum kvarta hástöfum yfir því að þessi mengun eyðileggi jarðarfarir, útivist, sundferðir, tónleika, afmæli og brúðkaup. ISAVIA og samgönguráðuneytið vita að þessi mengun og þetta viðstöðulausa ónæði hefur alvarleg áhrif á lýðheilsu, en gera ekki neitt. Þá spyrjum við: Hvaða hagsmunum telja þessir aðilar sig vera að þjóna? Opinberar mælingar skortir og WHO varar við Alþjóðaheilbrigðisstofnunin skilgreinir hávaðamengun sem alvarlegt lýðheilsuvandamál og samt búa tugþúsundir Íslendinga við hávaða sem fer langt yfir viðmiðunarmörk. Meðlimir okkar hafa ítrekað mælt yfir 60 dB innandyra og yfir 80 dB utandyra. En ótrúlegast í þessu öllu er að engin opinber hávaðamæling fer fram af vellinum. Reykjavíkurflugvöllur notast við reiknuð gildi til að meta hljóðmengun, eins konar áætlanir gerðar af rekstraraðilum sjálfum. Við spyrjum: Af hverju er þetta látið viðgangast? Áform stjórnvalda: Að festa vanda í sessi Ríkisstjórnin undir forystu Eyjólfs Árnasonar hefur nú kynnt áform um að festa flugvöllinn í sessi þrátt fyrir að hann starfi á fjölmörgum undanþágum frá öryggisreglum og þrátt fyrir að starfsleyfið sé í uppnámi vegna mengunar. Að ráðherrann sé fyrrverandi starfsmaður ISAVIA gerir málið enn vafasamara. Hvaða hagsmunum er hann tilbúinn að fórna til að standa vörð um forréttindi fámenns hóps? Á fundi samtakanna með ráðherra komum við því skýrt á framfæri að eina leiðin til að skapa sátt um Reykjavíkurflugvöll væri með brotthvarfi allrar óöruggustu flugumferðarinnar yfir þéttbýli. Forsætisráðherra, þér hefur verið tíðrætt um fagmennsku, ábyrgð og traust í stjórnmálum. Því er óhjákvæmilegt að spyrja: Hvernig getur ríkisstjórnin staðið fyrir því að fara í stórtæka uppbyggingu á Reykjavíkurflugvelli án þess að tryggja viðunandi eftirlit og stjórnarhætti í málefnum er varða flugvöllinn? Lokaorð: Ríkið ber ábyrgð Þér hefur verið tíðrætt um að þú sért „sátt“ við stöðuna þar sem aðrir kostir séu ekki tilbúnir. Stjórnmálafólk ber ábyrgð á því að aðrir kostir séu ekki tilbúnir, þið eruð með boltann! Það er ekki valkostur að sitja aðgerðalaus þegar lýðheilsa og öryggi tugþúsunda íbúa er í húfi. Ef kennsluvél hrapar á Barnaskóla Kársness, ef flugfari bregst yfir Alþingi, Ráðhúsi Reykjavíkur eða Hljómskálagarðinum, þá mun enginn geta sagt að aðvaranir hafi ekki verið gefnar. Þá mun þín ríkisstjórn bera ábyrgð á að hafa ekki tryggt öryggi íbúa með viðunandi hætti. Við krefjumst þess að lýðheilsa og öryggi almennings verði sett ofar forréttindum fárra. Virðingarfyllst,Íbúar höfuðborgarsvæðisins og meðlimir Hljóðmarkar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun