„Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. desember 2025 12:33 Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Valsmanna, var ekki sáttur með dómgæsluna og bauð upp á kennslustund í kaldhæðinslegu klappi á hliðarlínunni. Sýn Sport Það er til klapp og svo er til klapp eins og sjöfaldur Íslandsmeistaraþjálfari bauð upp á í síðasta leik.
Finnur Freyr Stefánsson hefur heldur betur náð að snúa við gengi Valsliðsins í Bónusdeild karla í körfubolta eftir dapra byrjun. Liðið vann sinn fjórða leik í röð í síðustu umferð og situr í fjórða sætinu en Bónus Körfuboltakvöld vakti athygli á látalátum meistaraþjálfarans á hliðarlínunni í sigrinum á Njarðvíkingum. „Finnur Freyr Stefánsson er náttúrulega búinn að vinna þetta allt saman ítrekað en sá kann að klappa,“ sagði Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Körfuboltakvölds og sýndi myndbrotið með Finn. Klippa: Kaldhæðnislegt klapp hjá Finni Frey „Þeir fengu tólf villur á sig í öðrum leikhluta og hann var að verða geðveikur á þessu, Finnur, þetta er hortugasta klapp sem ég hef séð,“ sagði Stefán Árni. „Þetta er bara Vesturbæjarhroki, beint af Kaffihúsi Vesturbæjar. Þetta voru svona fjórir til fimm tvöfaldir espressó í þessu klappi,“ sagði Sævar Sævarsson. „Fyrir svona þjálfara sem eru með siguráru þá verða þeir að vera með smá svona. Ég veit það fyrir víst að dómararnir fundu fyrir hverri einustu snertingu á höndunum þarna. Það nísti inn að beini að þeir voru að taka rangar ákvarðanir. Þetta hafa ábyggilega verið tólf klöpp, fyrir hverja einustu villu sem var búið að dæma bara: „Takið ykkur taki drengir. Ég er búinn að vinna fullt af titlum og ég veit hvernig þetta á að vera,“ sagði Sævar. Það má sjá klappið og umræðuna hér fyrir ofan.
Bónus-deild karla Valur Körfuboltakvöld Mest lesið Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Körfubolti Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Fleiri fréttir Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Sjá meira