Litháar lýsa yfir neyðarástandi vegna belgja frá Belarús Kjartan Kjartansson skrifar 9. desember 2025 08:48 Litháískur landamæravörður virðir fyrir sér veðurbelg sem var notaður til að smygla vindlingum frá Belarús. Belgjunum er einnig talið ætlað að valda truflunum og glundroða í Litháen. AP/landamæraeftirlit Litháens Stjórnvöld í Litháen lýstu yfir neyðarástandi í dag vegna öryggisógnar sem þau telja stafa af veðurbelgjum sem svífa yfir landamærin frá Belarús, bandalagsríki Rússlands. Ítrekað hefur þurft að loka flugvellinum í Vilníus vegna belgjanna.
Belgirnir eru sagðir ógna mannslífum, eignum og umhverfi í yfirlýsingu litháísku ríkisstjórnarinnar. Þeir hafi jafnframt borið smyglvarning frá Belarús. Þannig séu belgjasendingarnar tegund af svonefndum blönduðum hernaði. „Neyðarástandi var lýst yfir vegna truflana á borgaralegu flugi og vegna áhyggna af þjóðaröryggi. Stofnanir þurfa að vinna nánar saman,“ sagði Vladislavas Kondratovicius, innanríkisráðherra, á ríkisstjórnarfundi þar sem ákveðið var að gefa yfirlýsinguna út. Belarús er náið bandalagsríki stjórnvalda í Kreml. Rússar eru sakaðir um að standa að baki ítrekaðs drónaflugs við evrópska flugvelli á undanförnum vikum. Nú síðast stefndu tveir óþekktir drónar að flugvél sem flutti Úkraínuforseta til Írlands í síðustu viku. Veðurbelgirnir frá Belarús eru notaðir til þess að smygla vindlingum yfir landamærin. Litháísk stjórnvöld telja aftur á móti að nágrannar þeirra beiti þeim vísvitandi til þess að valda röskunum. Lithaísk stjórnvöld sökuðu Rússa fyrr á þessu ári um að hafa skipulagt hryðjuverk þar sem eldur var lagður að IKEA-verslun í Vilníus í fyrra.
Litáen Belarús Rússland Fréttir af flugi Öryggis- og varnarmál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira