Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Opin vinnustofa 11. desember 2025 14:48 Myndlistarmennirnir Unnar Ari Baldvinsson og Árni Már Erlingsson segja komandi ár verða ár tilrauna. Þeir hafa komið sér vel fyrir úti á Granda og bjóða í fögnuð á nýju vinnustofunni. Sunna Ben Á listamennirnir Árni Már og Unnar Ari opna dyrnar að nýju vinnustofunni sinni á Fiskislóð 22 á laugardaginn milli klukkan 14 og 17. Þeir eru báðir með bunka af nýjum verkum auk eldri verka sem gestir geta gramsað í. „
Desember er brjáluð keyrsla hjá listafólki og mikil stemning, svo verður það bara heilsuhælið í Hveragerði í janúar," segir Árni Már hress en hann opnaði líka einkasýningu á Vínstúkunni í byrjun mánaðar, auk þess sem hann rekur Gallerý Port á Laugavegi og þar var einnig opnun um liðna helgi. Þá eiga bæði Árni og Unnar verk á samsýningu á vegum Gallerýs Ports sem verður opnuð í Rammagerðinni líka á laugardaginn. Það eru allir svo glaðir í desember, leyfa sér meira og eru í fíling. Fólk gefur gjarnan list í jólagjöf sem er gott fyrir alla. Málverk Árna Más bera með sér óræða hreyfingu og einkennast af afmörkuðum litastrendingum sem blandast við samfléttaðar formgerðir, sem eiga tilurð sína í spunatengdum innsæisteikningum. „Við erum mjög spenntir fyrir nýja rýminu, hér eru stórir og flottir gluggar og við sjáum fyrir okkur að geta experimentað saman hér," segir Unnar Ari. „Það er allt annað að deila vinnurými með öðrum en að vera einn með sjálfum sér að vinna,“ segir hann og Árni tekur undir það. Þeir vinni báðir í málverki en efnisnotkunin og formfræðin sé ólík, ennþá. Í verkum sínum vinnur Unnar með form og rými á einfaldan en áhrifaríkan hátt. Í einfaldleikanum myndast þyngd sem hefur áhrif á rýmið sem verkið er í og leiðir áhorfendan áfram. „Það er viðbúið að einhver áhrif smitist á milli, við erum með verk hvors annars fyrir augunum og hendum á milli hugmyndum. Það er öðruvísi prósess að vinna saman en einn,“ segir Árni. Þeir segja komandi ár verða ár tilrauna hjá þeim báðum. „Við erum strax byrjaðir á nýjum tilraunum.“ Verk Árna byggja oft á persónulegum reynsluheimi, og endurspegla hæglát augnablik í náttúru og þróun innri vegferðar. Uppruna verka hans má rekja til graff-menningar tíunda áratugarins og hip-hop tónlistar. Líkamleg framkvæmd verkanna er oftar en ekki bersýnileg, en hann er listamaður margra miðla. Verk Unnars hafa vakið athygli fyrir næmni í efnismeðferð og sterka fagurfræði þar sem formið sjálft tengist við rammann, strigann og vegginn. Dyrnar verða opnaðar klukkan 14 á laugardaginn og vonast þeir Árni og Unnar til þess að fólk nýti tækifærið til að hitta þá, sjá vinnuferlið við málverkið og njóta skapandi laugardags á Granda. Hygge verður með veitingar á staðnum og Vínstúkan 10sopar með fljótandi veigar.
Menning Myndlist Jól Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Fleiri fréttir „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Sjá meira