Hjálmar gefur ekki kost á sér Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. desember 2025 11:23 Hjálmar Sveinsson segir skilið við pólitíkina. Vísir/Vilhelm Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi Samfylkingarinnar frá árinu 2010 hefur ákveðið að segja staðar numið í stjórnmálum. Hann gefur ekki kost á sér í komandi borgarstjórnarkosningum í maí.
Hjálmar upplýsti um ákvörðun sína í færslu á Facebook. „Ég er þakklátur öllum þeim Reykvíkingum sem hafa kosið Samfylkinguna í undanförnum fernum kosningum. Við höfum sett fram skýra stefnu um framtíð Reykjavíkur, að hún breytist smám saman úr dreifðri bílaborg í þétta, vistvæna og mannvæna borg,“ segir Hjálmar. Hann nam heimspeki, bókmenntir og þýsk fræði í háskóla og starfaði lengi við fjölmiðla, meðal annars við dagskrárgerð hjá Ríkisútvarpinu. Þar var hann einn umsjónarmanna Spegilsins um tíma. Hann sneri sér að stjórnmálunum árið 2010 og hefur verið borgarfulltrúi Samfylkingarinnar síðan. Þar hefur hann lagt mikla áherslu á þéttingu byggðar en hann er sjálfur mikill útivistarmaður, hlaupari og hjólreiðamaður. „Við höfum líka lagt mikla áherslu á samvinnu borgarinnar við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög. Þessi stefna hefur orðið til þess, að mínu mati, að Samfylkingin hefur verið leiðandi flokkur í borgarstjórn síðustu 16 árin. Vonandi verður svo áfram. Ég sný mér að öðru, en verð alltaf ákafur talsmaður stefnunnar,“ segir Hjálmar í tilkynningu sinni. Hjálmar er annar borgarfulltrúi flokksins sem skilur við stjórnmálin. Sabine Leskopf tilkynnti á dögunum að hún myndi ekki gefa áframhaldandi kost á sér. Flokknum barst á móti liðsauki í gær þegar Dóra Björt Guðjónsdóttir, áður Pírati, tilkynnti um vistaskipti sín yfir í Samfylkinguna.
Samfylkingin Borgarstjórn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira